Back to search

Reykjavík University

Fjármálaólæsi og vantraust á fjármálamarkaði: Viðhorf almennings og fagfjárfesta til sjóða rekstrarfélaga

Abstract

dc:description.abstract

Rannsókn þessi var gerð til að kanna viðhorf almennings og fagfjárfesta til rekstrarfélaga og sjóða þeirra. Einnig vildu höfundar komast að því hvort þyrfti mismunandi áherslur í markaðsefni fyrir almenning og fagfjárfesta. Lagðar voru fyrir tvær kannanir. Fyrri könnunin var ætluð almenningi og snéri að fjárfestingaráformum einstaklinga og þekkingu á verðbréfamarkaði. Í henni voru spurningar sem snéru að viðhorfi þátttakenda, trausti, þekkingu og áhættuvilja bornar saman við bakgrunnsbreyturnar kyn, aldur, menntunarstig, húsnæðisaðstæður og tekjur. Seinni könnunin var ætluð fagfjárfestum og var send á valinn hóp. Í þeirri könnun voru spurningar sem snéru að viðhorfi þátttakenda, trausti, upphæð fjárfestinga og vali á eignastýringaraðilum bornar saman við bakgrunnsbreyturnar kyn, aldur og menntunarstig. Niðurstöður sýndu að meirihluti almennra þátttakenda hafði ekki myndað sér skoðun á viðhorfi til rekstrarfélaga og sjóða. Þegar kemur að þekkingu á verðbréfamarkaði töldu þeir sem höfðu lokið hærra menntunarstigi, sem og þeir tekjuhærri, sig hafa meiri þekkingu en hinir. Þegar borin voru saman svör karla og kvenna eru karlar almennt viljugri til að taka meiri áhættu og bera almennt meira traust til sjóða. Þá töldu karlar sig hafa meiri þekkingu á verðbréfamarkaði en konur. Í niðurstöðum fagfjárfesta kom í ljós að almennt treysta þeir sjóðum rekstrarfélaga. Bakgrunnsbreyturnar höfðu ekki áhrif á viðhorf og virðast fagfjárfestar almennt horfa til starfsfólks og trausts þegar kemur að vali á eignastýringaraðilum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Edda Karen Davíðsdóttir 1992-
  • Lilja Björk Ketilsdóttir 1978-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22632
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22632

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Edda Karen Davíðsdóttir 1992-; Lilja Björk Ketilsdóttir 1978-. Fjármálaólæsi og vantraust á fjármálamarkaði: Viðhorf almennings og fagfjárfesta til sjóða rekstrarfélaga. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22632