Back to search

Reykjavík University

Knattspyrna í fámennari byggðarlögum á landsbyggðinni

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangurinn með þessari rannsókn er að skoða stöðu knattspyrnunnar í byggðarlögum fámennari en 1000 manns á Íslandi. Þátttakendur í þessari rannsókn gegndu allir einhverskonar stjórnunarstarfi fyrir íþróttafélögin í sínu byggðarlagi. Markmið rannsóknarinnar var að draga upp mynd af knattspyrnumenningunni á landsbyggðinni í byggðarlögum fámennari en 1000 manns með sérstaka áherslu á meistaraflokk karla og skoða hvaða þættir hafa áhrif á þátttöku af þeirra hálfu á Íslandsmóti karla í knattspyrnu. Í ljósi þess að knattspyrnuliðum frá byggðarlögum færri en 1000 manns hefur fækkað um rúmlega helming frá árinu 1982. Helstu niðurstöður þessarar rannsóknar leiddu í ljós að í meira en helmingi byggðarlagana stunda færri en 25 karlmenn knattspyrnu að staðaldri sem má rekja til skorts á ungum karlmönnum innan byggðarlagsins í kjölfar breyttrar aldurssamsetningar í byggðarlögum þar sem fólksfækkun er viðvarandi og hækkandi hlutfall aldraðra. Sem hefur áhrif á þátttöku iðkenda innan íþróttafélagana. Þá leiddu niðurstöður til þess að í 41,9% af byggðarlögum fámennari en 1000 manns eru ekki starfræktar skipulagðar knattspyrnuæfingar fyrir börn og unglinga. Auk þess sem knattspyrnuæfingar fyrir kvenfólk eru ekki starfræktar með skipulögðum hætti í 54,8% byggðarlaga fámennari en 1000 manns.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Andri Steinn Birgisson 1983-
  • Eysteinn Elvarsson 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22441
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22441

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Andri Steinn Birgisson 1983-; Eysteinn Elvarsson 1985-. Knattspyrna í fámennari byggðarlögum á landsbyggðinni. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22441