Back to search

Reykjavík University

Heimildir til gjaldtöku fyrir för almennings um eignarlönd

Abstract

dc:description.abstract

Heimildir til gjaldtöku fyrir för almennings um eignarlönd Viðfangsefni ritgerðarinnar er að svara því hverjar heimildir landeigenda eru til gjaldtöku fyrir för fólks um land, vötn og netlög sjávar en þessi réttur sætir takmörkunum vegna fararréttar almennings á grundvelli almannaréttar. Í ritgerðinni eru eðli og sögulegri þróun almannaréttar gerð skil til að leiða í ljós inntak hans. Mestur þungi fer þó í að gera grein fyrir fararrétti almennings á grundvelli almannaréttar með tilliti til gjaldtökuspurningarinnar. Fararréttur almennings er misjafnlega ríkur eftir því hvernig og hvar er farið um. Sé fararréttur ekki fyrir hendi má almennt krefjast gjalds fyrir för. Því er öfugt farið ef almenningur má fara um eignarland á grundvelli almannaréttar. Ef landeigandi má hins vegar banna för, án tilgreindra ástæðna, má færa rök fyrir því að innan heimilda hans rúmist einnig að heimila för sem greitt er fyrir. Rökstyðja má jafnframt að slík gjaldtaka sæti ekki takmörkunum. Þótt fararréttur almennings sé fyrir hendi takmarkast hann almennt við að hann ekki sé nýttur þannig að gengið sé of nærri hagsmunum landeiganda. Það hagsmunamat tekur meðal annars mið af eðli lands, fararmáta, fjölda ferðamanna og undirliggjandi hagsmunum landeiganda. Gangi för of nærri hagsmunum landeiganda getur hann takmarkað eða eftir atvikum bannað hana. Hægt er að rökstyðja að í þeim tilvikum geti landeigandi kosið að leyfa slíka för gegn greiðslu. Líkur standa þó til þess að slíkt gjald þurfi að miðast við fórnaða hagsmuni og ýmsan kostnað vegna fararinnar en megi ekki útiloka einhverja eða flesta frá því að neyta fararréttarins. Sömu takmörkunum sætir sú gjaldtaka sem getur verið heimil vegna farar ferðamanna í skipulögðum hópferðum sem raskað getur hagsmunum landeiganda. Þá þykir ljóst að landeigandi má krefjast gjalds fyrir þjónustu eða það sem hann leggur sérstaklega til vegna farar umfram lögbundnar skyldur sínar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóhann Fannar Guðjónsson 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22276
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22276

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóhann Fannar Guðjónsson 1982-. Heimildir til gjaldtöku fyrir för almennings um eignarlönd. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22276