Back to search

Reykjavík University

Olíuleit á Drekasvæðinu - lagaumhverfi og milliverðsreglur

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð verður fjallað um komandi olíustarfsemi á Drekasvæðinu norðaustur af Íslandi. Í því samhengi verður leitast við að meta eignarréttarlega stöðu útgefinna sérleyfa til rannsóknar og vinnslu kolvetnis á svæðinu. Þá verða aflaheimildir bornar saman við útgefin sérleyfi og kannað hvort að þær eigi sér hliðstæðu í því samhengi. Að auki verður gerð grein fyrir hérlendu laga- og skattaumhverfi kolvetnisstarfsemi. Reynt verður að komast að niðurstöðu hvort að íslenskt skattaumhverfi sé samkeppnishæft í alþjóðlegu tilliti með hliðsjón af þeim takmörkunum sem EES-samningurinn setur. Að auki verða þær milliverðsreglur sem hér gilda skoðaðar og reynt að komast að niðurstöðu hvort að þær nái markmiði sínu um að tryggja hlutdeild Íslands í hagnaði af mögulegri kolvetnisstarfsemi. Þá verður leitast við að meta mögulega vankanta á núgildandi löggjöf á þessu sviði og komið með tillögur af úrbætum. Niðurstöður höfundar eru í stuttu máli þær að útgefin sérleyfi á Drekasvæðinu myndi ekki eiginleg eignarréttindi. Þó getur íslenska ríkið orðið skaðabótaskylt fyrir útlögðum kostnaði og því fjárhagslega tjóni sem sérleyfishafar ná að sýna fram á. Íslenskt lagaumhverfi kolvetnisstarfsemi er að mörgu leiti samkeppnishæft á alþjóðavísu þrátt fyrir þær takmarkanir sem EES-samningurinn setur. Huga má þó að ýmsum breytingum, t.a.m. koma hér á fót samkeppnishæfri alþjóðlegri skipaskrá sem býður upp á skráningu þjónususkipa og olíuborpalla. Þá má huga að því að gera breytingar á þeim milliverðssreglum sem nýlega voru lögfestar með því að skýra hugtakið ,,tengdir aðilar” og undanskilja innlenda aðila frá skjölunarskyldunni. Að öðru leyti er íslensk löggjöf heilt yfir gagnsæ og skilvirk er varðar kolvetnisstarfsemi og ekki má ætla að skattlagning slíkrar starfsemi sé fyrirstaða þar sem nú þegar hafa verið gefin út sérleyfi á grundvelli gildandi laga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Haraldur Rafn Pálsson 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22261
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22261

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Haraldur Rafn Pálsson 1987-. Olíuleit á Drekasvæðinu - lagaumhverfi og milliverðsreglur. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22261