Back to search

Reykjavík University

Óhefðbundin vörumerki í alþjóðlegu samhengi og skráningarhæfni þeirra á Íslandi, með sérstakri áherslu á litmerki

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessarar ritgerðar snýr að óhefðbundnum vörumerkjum, en rannsóknarspurningin er „Hvert er skráningarhæfni óhefðbundinna vörumerkja á Íslandi, í samanburði við Evrópusambandið?”. Megin umfjöllunarefnið er skráningarhæfni slíkra vörumerkja, en til þess að gera efninu skil er nauðsynlegt að greina gildandi rétt. Í því felst að greina vörumerkjahugtakið ásamt því að fara ítarlega yfir dómaframkvæmd, hérlendis upp að því marki sem hún er til, auk þess sem dómar Evrópudómstólsins og annarra dómstóla voru greindir. Meðal þess sem rannsóknin leiddi í ljós er það að vörumerkjahugtakið samkvæmt núgildandi íslenskum vörumerkjalögum er mun þrengra en sambærileg ákvæði nágrannaríkjanna og hefur það áhrif á skráningarhæfni nokkurra tegunda óhefðbundinna vörumerkja hér á landi. Meðal annars er um að ræða tegundir vörumerkja sem Evrópudómstóllinn hefur slegið föstu að séu skráningarhæf. Þá hefur rannsóknin einnig leitt í ljós að litmerki eru skráningarhæf bæði hérlendis og í nágrannaríkjum, en skráning þeirra lýtur nokkuð ströngum skilyrðum sem tengjast að mestu samkeppnissjónarmiðum og þeirri kröfu að liturinn hafi öðlast sérkenni í kjölfar notkunar. Hvað varðar aðrar tegundir óhefðbundinna vörumerkja, að þrívíddarmerkjum undanskildum hefur rannsóknin leitt í ljós að helstu vandkvæði við skráningu þeirra lúti að því að ekki sé hægt að setja merkið fram á sýnilegan hátt eða lýsa þeim skriflega.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Dagný Fjóla Jóhannsdóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/20578
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/20578

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Dagný Fjóla Jóhannsdóttir 1990-. Óhefðbundin vörumerki í alþjóðlegu samhengi og skráningarhæfni þeirra á Íslandi, með sérstakri áherslu á litmerki. 2015. http://hdl.handle.net/1946/20578