Back to search

Reykjavík University

Stefnumótun - lykill að árangri? : úttekt á stefnumótun Bláa Lónsins með hliðsjón af vexti og velgengni félagsins

Abstract

dc:description.abstract

Bláa Lónið er einn fjölsóttasti ferðamannastaður á Íslandi bæði af innlendum og erlendum ferðamönnum og hefur umfang starfseminnar aukist mikið undanfarin ár. Starfsemin er byggð á fjórum tekjustoðum sem eru baðstaðurinn sjálfur, vörusvið með þróun og sölu á húðvörum, Lækningalind og veitingasvið. Það er því í mörg horn að líta þegar kemur að samstillingu, sérstöðu og samkeppnisforskoti á markaði og árangri í rekstri. Markmið þessarar greinar var að skoða þróun stefnumótunar í Bláa Lóninu og aðferðir við stefnumótun og stefnumiðaða stjórnun, með hliðsjón af vexti og velgengni félagsins. Ferlið var skoðað frá upphafi starfsemi Bláa Lónsins til dagsins í dag og tímalína teiknuð upp sem afmarkar lykilþætti í vexti fyrirtækisins og megin stefnumótandi ákvarðanir. Stuðst var við megindlega og eigindlega rannsóknaraðferð. Viðtöl voru tekin við nokkra lykilstarfsmenn Bláa Lónsins auk þess sem spurningakönnun varð lögð fyrir starfsfólk fyrirtækisins. Einnig var tekið viðtal við Bjarna Snæbjörn Jónsson sem hefur komið að ráðgjöf hjá fyrirtækinu frá árinu 1998. Helstu niðurstöður voru þær að Bláa Lónið er stefnumiðað frumkvöðlafyrirtæki þar sem stefnan mótast í takt við tækifærin sem upp koma hverju sinni og á sér rætur í frumkvöðlinum. Mikill vöxtur og breytingar hafa átt sér stað hjá fyrirtækinu og hafa stefnumótandi ákvarðanir verið teknar án þess að formlegu ferli hafi verið fylgt. Í þeim skilningi var stefnan mótuð nánast frá upphafi en var þó ekki mótuð, innleidd eða skrifuð niður eftir hefðbundinni aðferðafræði. Heilt yfir litið er lítið til af fullmótuðum gögnum um þróun stefnumótunar og er mikið af upplýsingum geymdar í minni lykilstarfsmanna innan fyrirtækisins. Fyrirtækið er frumkvöðladrifið og hefur sveigjanleiki og drifkraftur einkennt starfsemina til þessa.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þuríður Stefánsdóttir 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/19527
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/19527

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þuríður Stefánsdóttir 1974-. Stefnumótun - lykill að árangri? : úttekt á stefnumótun Bláa Lónsins með hliðsjón af vexti og velgengni félagsins. 2014. http://hdl.handle.net/1946/19527