Back to search

Reykjavík University

„Engar Súkkulaðikleinur” -Reynsla framkvæmdastjóra af áhrifum kynjakvóta á starfshætti stjórna

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar er að kanna tilgang og áhrif nýtilkominnar lagasetningar um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja á Íslandi. Áhrif lagasetningarinnar var könnuð með því að skoða stjórnir sem töldust einsleitar áður en lögin tóku í gildi en innihalda nú stjórnarmenn af báðum kynjum. Kannað var hvort munur sé á starfsemi stjórnanna eftir breytinguna. Í þessari rannsókn var einsleitni í stjórnum skoðuð með tilliti til kyns stjórnarmeðlima og taldist stjórn einsleit ef hún hafði einungis meðlimi af öðru kyninu. Fjölbreytni á því við um stjórnir sem innihalda einstaklinga af báðum kynjum. Rannsóknarspurningin var „Finna framkvæmdastjórar fyrirtækja mun á starfsháttum stjórnarinnar þegar konur hafa bæst við stjórnarborðið?” Þar sem hún krefst dýpri skilnings en fenginn yrði úr megindlegri rannsókn, var notuð eigindleg rannsóknaraðferð. Djúpviðtöl voru tekin við alls níu einstaklinga. Þátttakendur rannsóknarinnar voru allir framkvæmdastjórar sem vinna náið með stjórn þess fyrirtækis sem þeir starfa hjá. Tölvupóstur var sendur á fjórtán manna úrtak þar sem útskýrður var fyrir þeim tilgangur rannsóknarinnar og þeir beðnir um að taka þátt. Þegar viðtölin fóru fram var notast við fyrirfram ákveðinn umræðuramma til þess að stýra viðtölunum. Tvær tilgátur voru settar fram í tengslum við rannsóknarspurninguna. Fyrri tilgátan var að framkvæmdarstjórinn finni mun á starfsháttum stjórnarinnar þegar konur hafa bæst við stjórnarborðið. Seinni tilgátan var að framkvæmdarstjórar telji eitt af einkennum góðra stjórna að í þeim sitji einstaklingar af báðum kynjum. Tilgáturnar fengust staðfestar í niðurstöðum rannsóknarinnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Heiðdís Fjóla Tryggvadóttir 1989-
  • Rósa Björk Guðnadóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/19464
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/19464

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Heiðdís Fjóla Tryggvadóttir 1989-; Rósa Björk Guðnadóttir 1990-. „Engar Súkkulaðikleinur” -Reynsla framkvæmdastjóra af áhrifum kynjakvóta á starfshætti stjórna. 2014. http://hdl.handle.net/1946/19464