Back to search

Reykjavík University

Leikgreining bandaríska og spænska landsliðsins í körfuknattleik á Ólympíuleikunum í London 2012

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessarar rannsóknar var að finna út hvað einkenndi leik bandaríska og spænska landsliðsins á Ólympíuleikunum í London 2012 með því að leikgreina liðin og búa til fræðilegt verkefni sem íslenskir þjálfarar geta leitað vitneskju í um hvernig megi leikgreina körfuboltaleiki með árángursríkum hætti. Gerðar voru leikgreiningarskýrslur í Excel og skýringarmyndir teiknaðar upp út frá leikbrotum sem voru klippt í leikgreiningarforritinu Sideline Sports. Viðtöl voru tekin við tvo íslenska körfuboltaþjálfara með reynslu af leikgreiningu til að öðlast dýpri skilning hvernig leikgreina megi með árángursríkum hætti. Liðin voru með skýrar leikáætlanir sem voru hannaðar út frá eigin styrkleikum og veikleikum. Skipulag bandaríska liðsins er meira mótað út frá því að fá opnari skot og þar með betri skotnýtingu, sækja sóknarfráköst og stela boltanum af andstæðingnum þegar er dripplað en þetta eru þrjú af fjórum helstu atriðum sem tölfræðin sýnir sem getur leitt til aukinna möguleika á sigri. Íslensku þjálfararnir eru að gera margt gott við að leikgreina lið sín út frá fræðunum en áhugavert væri að gera vettvangsrannsókn til að fylgjast með einbeitingarþáttum við framkvæmd leikgreiningar hjá þjálfurunum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Birgir Björn Pétursson 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/19359
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/19359

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Birgir Björn Pétursson 1986-. Leikgreining bandaríska og spænska landsliðsins í körfuknattleik á Ólympíuleikunum í London 2012. 2014. http://hdl.handle.net/1946/19359