Back to search

Reykjavík University

Stjórn fiskveiða og stjórnskipuleg álitaefni

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um stjórnkerfi fiskveiða og helstu stjórnskipulegu álitaefni sem risið hafa í tengslum við það. Slík álitaefni hafa aðallega risið á grundvelli eignarréttarákvæði 72. gr., atvinnufrelsisákvæði 75. gr. og jafnræðisreglu 65. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Þá verða framangreind álitaefni sett í samhengi við bæði nýlegar breytingar á stjórnkerfi fiskveiða með álagningu veiðigjalds sem og fyrirhugaðar breytingar á stjórnkerfi fiskveiða þannig að samningaleiðin, sem felur í sér að samið verði um úthlutun aflaheimilda til ákveðins tíma, taki við af varanlega úthlutuðum aflaheimildum sem núverandi stjórnkerfi fiskveiða byggist á. Í upphafi ritgerðarinnar verður fjallað um þær grundvallarreglur sem stjórnskipun Íslands byggir á og hvernig þær reglur endurspeglast í stjórnarskránni. Þá verður einnig fjallað sérstaklega um framangreind stjórnarskrárákvæði sem helstu álitaefni í tenglum við stjórn fiskveiða hafa risið á og gerð verður grein fyrir því á hverju þessi álitaefni byggja. Því næst verður fjallað sögulega um stjórnkerfi fiskveiða, það er að segja tilurð þess og hvernig kerfið hefur þróast og orðið að því kerfi sem notast er við í dag. Þar á eftir verður fjallað um þau stjórnskipulegu álitefni sem risið hafa á grundvelli eignarréttarákvæðis stjórnarkrárinnar, það er að segja hvort aflaheimildir njóti verndar þess. Þar næst verður svo fjallað um þau stjórnskipulegu álitaefni sem risið hafa á grundvelli atvinnufrelsisákvæðis og jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar en dómstólar hafa þegar skorið úr um þau álitaefni í dómum sínum í Veiðileyfamálinu og Vatneyrarmálinu og verður því gerð grein fyrir niðurstöðum í þeim málum. Því næst verður svo fjallað um nýlegar og fyrirhugaðar breytingar á stjórnkerfi fiskveiða sem að framan eru greindar og þau stjórnskipulegu álitefni sem kunna að rísa á grundvelli 72. gr., 75. gr., og 65. gr. stjórnarskrárinnar í tenglum við breytingarnar. Að lokum verður svo lagt mat á það hvort hinar nýlegu og fyrirhuguðu breytingarnar á stjórnkerfi fiskveiða brjóti gegn 72. gr., 75. gr. og 65. gr. stjórnarskrárinnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Arndís Bára Ingimarsdóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/19291
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/19291

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Arndís Bára Ingimarsdóttir 1985-. Stjórn fiskveiða og stjórnskipuleg álitaefni. 2014. http://hdl.handle.net/1946/19291