Reykjavík University
Samspil riftunarreglna laga um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991 og skilasvikaákvæða almennra hegningarlaga nr. 19/1940
Abstract
dc:description.abstractEfni ritgerðar þessarar og sú rannsókn sem í henni felst er að greina hvert samspil riftunarreglna laga um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991 og skilasvikaákvæða almennra hegningarlaga nr. 19/1940 er. Enn fremur að horfa til þess hvernig það samspil birtist. Leitað er svara við þeirri spurningu hvað sé raunverulega líkt með ákvæðunum og hvar greini í milli. Loks er greint frá því hvar mörk þessara ákvæða liggja, með öðrum orðum hvenær sú háttsemi manns að ráðstafa eignum við gjaldþrot sé ekki einungis riftanleg heldur geti verið refsiverð. Við rannsókn þessara álitaefna er einkum litið til íslenskrar laga- og dómaframkvæmdar og hvort og þá hvernig lagaákvæðin tengjast í gegnum hana. Þá eru skrif fræðimanna á hvoru sviði fyrir sig höfð til hliðsjónar, en samanburður ákvæðanna er að mestu óskrifað blað. Draga má niðurstöður rannsóknarinnar saman á þá leið, að sýnt þyki að samspil ákvæðanna er fjölþætt í íslenskum rétti. Birtist það einkum í efnislegri skörun ákvæðanna ásamt því sem kæruskylda skiptastjóra samkvæmt 84. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991 felur í sér lögbundna tengingu réttarsviðanna á milli. Tilvik þar sem riftunarmál og skilasvikamál eru höfðuð vegna sömu lögskipta eru mjög fátíð og má komast svo að orði að beiting annars ákvæðisins hvorki komi í veg fyrir, né feli í sér nauðsyn þess að hinu ákvæðinu verði jafnframt beitt. Í því samhengi er þarft að hafa í huga, að sú háttsemi manna að ráðstafa eignum við gjaldþrot er refsiverð en ekki einungis riftanleg þegar auðgunarásetningur er til staðar. Vegna umfangs samspils ákvæðanna í fræðilegu tilliti, er komist að þeirri niðurstöðu að birtingarmynd þess í framkvæmd, að kæruskyldunni undanskilinni, er ekki eins algeng og efni standa til.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jóhanna Sveina Hálfdánardóttir 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/19290
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/19290