Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er leitast við að svara þeirri spurningu hvort reglur Haagsamningsins og brottnámslaga nr. 160/1995 sem kveða á um skil á barni séu of fortakslausar eða hvort dómstólar hafi nægt svigrúm til þess að synja um afhendingu barns ef hagsmunir þess mæla með því. Í fyrri hluta ritgerðar er gerð grein fyrir lagaumhverfinu í brottnámsmálum. Fjallað er um Haagsamninginn, lög nr. 160/1995 og þau ákvæði barnalaga nr. 76/2003 sem helst koma til skoðunar í brottnámsmálum hér á landi. Einnig er fjallað um Evrópusamninginn og helstu reglur samkvæmt honum. Þá er í fyrri hluta ritgerðar gerð grein fyrir Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og Mannréttindasáttmála Evrópu og ákvæðum þeirra sem og stjórnarskrárinnar sem tengjast hvað mest úrlausn brottnámsmála hér á landi. Í síðari hluta ritgerðar er fjallað um hvað telst vera ólögmætt brottnám barns samkvæmt Haagsamningnum og 11. gr. laga nr. 160/1995. Í sérstökum kafla er fjallað um hagsmuni barna í brottnámsmálum, helstu sjónarmið tengd meginreglunni um það sem barni er fyrir bestu og hvernig sú meginregla birtist í Haagsamningnum. Þá er gerð grein fyrir undantekningarheimildum Haagsamningsins og 12. gr. brottnámslaga en auk þess fjallað um hvernig börn geta komið sjónarmiðum sínum á framfæri í brottnámsmálum. Farið er yfir dómaframkvæmd Hæstaréttar í málum á grundvelli Haagsamningsins og laga nr. 160/1995, dómarnir reifaðir og ályktanir af dómaframkvæmd dregnar. Í lok ritgerðar er gerð grein fyrir niðurstöðum skrifanna en af þeim má ráða að dómstólar hér á landi taki ekki mið af mannréttindaákvæðum við úrlausn brottnámsmála jafnvel þótt algengt sé að málsaðilar vísi til slíkra ákvæða til stuðnings kröfum sínum. Þrátt fyrir það er niðurstaðan almennt sú að dómstólum eru ekki settar of þröngar skorður þegar kemur að því að dæma í brottnámsmálum og talið að þær undanþáguheimildir sem Haagsamningurinn og brottnámslögin hafa að geyma eigi að veita dómstólum nægt svigrúm til þess að hagsmuna þeirra barna sem eiga í hlut hverju sinni sé gætt.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Vala Hrönn Viggósdóttir 1971-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/19289
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/19289