Back to search

Reykjavík University

Endurgreiðslukröfur í riftunarmálum samkvæmt XX. kafla laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl.

Abstract

dc:description.abstract

Í kjölfar þeirra atburða sem áttu sér stað á fjármálamörkuðum haustið 2008 og þeirri óvissu sem myndaðist í viðskiptum hér á landi á þeim tímum, varð gríðarleg fjölgun á gjaldþrotum, hvort sem um var að ræða einstaklinga eða lögaðila. Reynslan sýnir að hjá einstaklingum jafnt sem lögaðilum sem fjárhagstaðan er slæm og stefnir í gjaldþrot, eiga til að falla í þá freistni að koma eignum undan áður en til gjaldþrots kemur til þess eins að bjarga sér og jafnvel hygla ákveðnum kröfuhöfum, en valda aftur á móti öðrum kröfuhöfum tilsvarandi tjóni. Því hefur reynt meira á reglur riftunar- og endurgreiðslukrafna í XX. kafla laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. eftir haustið 2008. Í þessari ritgerð var leitað svara við þeirri spurningu hver séu tilgangur og hlutverk endurgreiðslukrafna í riftunarmálum samkvæmt XX. kafla laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. Við skrifin var að mestu leyti stuðst við danskar og íslenskar heimildir, Hæstaréttardóma og lögskýringargögn með lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. Lögum um gjaldþrotaskipti í Danmörku svipar mjög til íslenskra laga um gjaldþrotaskipti o.fl. Við lausn á rannsóknarspurningu ritgerðarinnar nálgaðist höfundur efnið út frá tveimur ólíkum sjónarhornum. Annars vegar hefst ritgerðin á því að fjallað almennt um riftun við gjaldþrotaskipti og endurgreiðslukröfur í riftunarmálum, en ekki er um tæmandi umfjöllun að ræða heldur er tilgangurinn fyrst og fremst sá að veita lesandanum yfirsýn um þær reglur sem við eiga og til skilningsauka áður en gerð verður grein fyrir meginviðfangsefni ritgerðarinnar. Í næstu tveimur köflum verður fjallað um meginefni ritgerðinnar, annars vegar endurgreiðslukröfur auðgunar samkvæmt 142. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. og hins vegar skil á verðmætum samkvæmt 144. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. Út frá seinna sjónarhorninu var horft til annarra ákvæða XX. kafla laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. sem til skoðunar koma við úrlausn um endurgreiðslu í riftunarmálum á grundvelli 142. og 144. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þorsteinn Skúli Sveinsson 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/19263
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/19263

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þorsteinn Skúli Sveinsson 1987-. Endurgreiðslukröfur í riftunarmálum samkvæmt XX. kafla laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl.. 2014. http://hdl.handle.net/1946/19263