Back to search

Reykjavík University

Virðisaukaskattur vegna sölu á þjónustu til erlendra aðila og kaupa á þjónustu erlendis frá

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni ritgerðarinnar eru íslenskar reglur er lúta að virðisaukaskattskyldu vegna sölu á þjónustu til erlendra aðila og kaupa á þjónustu erlendis frá samkvæmt 10. tölul. 1. mgr. 12. gr. og 35. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt. Umfjöllunarefnið skiptist í tvo hluta. Í fyrsta lagi er markmiðið að rannsaka hvort umrædd ákvæði uppfylli þau skilyrði sem stjórnarskrá setur fyrir lögmæti skattlagningarheimilda. Í öðru lagi er tekið til athugunar hvort túlkun skattyfirvalda á reglunum hafi tekið breytingum og hvort sú breyting á skattframkvæmd standist reglur stjórnsýsluréttarins um breytingar á þekktri stjórnsýslumeðferð og bann stjórnarskrár við afturvirkri skattlagningu. Í kafla eitt er gert grein fyrir inntaki og meginviðfangsefni ritgerðarinnar. Í kafla tvö er fjallað um þau lagaákvæði sem um ræðir framkvæmd skattyfirvalda á þeim rakin. Þriðji kafli fjallar um þær kröfur sem gerðar eru til skýrleika skattlagningarheimilda. Í fjórða kafla er fjallað um túlkun skattaákvæða í lögum og í fimmta kafla er fjallað um bann við afturvirkni skattlagningarheimilda og sjónarmið um breytingar á þekktri stjórnsýsluframkvæmd. Sjötti kafli er tileinkaður erlendum samanburði, en í honum er fjallað um reglur Evrópusambandsins annars vegar og Noregs hins vegar er lúta að viðfangsefni ritgerðarinnar. Að lokum er í sjöunda kafla fjallað um væntanlegar breytingar á virðisaukaskattskerfinu og hugmyndir höfundar að endurbótum á þeim reglum sem fjallað er um í ritgerðinni. Niðurstaðan er í meginatriðum sú að þau ákvæði sem um ræðir virðast ekki standast áskilnað stjórnarskrár um skýrleika. Þá er það mat höfundar að afturvirk breyting á túlkun skattalagaákvæða gangi í berhögg við 2. mgr. 77. gr. stjórnarskrár. Telur höfundur að tímabært sé að uppfæra umræddar reglur til samræmis við viðskiptaumhverfi nútímans. Slíkt myndi án efa efla samkeppnishæfni og skilvirkni íslensks virðisaukaskattskerfis og vera bæði hinu opinbera og skattgreiðendum til hagsbóta.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðrún Lilja Sigurðardóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/19258
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/19258

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún Lilja Sigurðardóttir 1989-. Virðisaukaskattur vegna sölu á þjónustu til erlendra aðila og kaupa á þjónustu erlendis frá. 2014. http://hdl.handle.net/1946/19258