Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar ritgerðar var að leita svara við þeirri spurningu hverra hagsmuna er verið að gæta þegar kemur að stjórnun í hlutafélögum. Fjallað verður um þá hagsmunaaðila sem eiga hluti í eða stjórna félögum og verður sérstaklega farið yfir stöðu og innbyrðis tengsl hluthafa, félagsstjórnar og stjórnenda hjá íslenskum og erlendum fyrirtækjum. Umfjöllunin um hagsmunaaðila sem stjórna hlutafélögum var skoðuð út frá stöðu þeirra í íslensku réttarkerfi með hliðsjón af erlendu réttarkerfi. Innlend og erlend dómaframkvæmd var einnig skoðuð og erlendar fræðigreinar og leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja. Mikil umræða hefur átt sér stað í íslensku samfélagi síðan haustið 2008 um áherslur og ábyrgð í íslensku lagaumhverfi og viðskiptalífi. Hafa vaknað margar spurningar um stjórnun fyrirtækja og tengsl í íslenskum félögum ásamt því hvað góðir stjórnarhættir séu. Í þessari ritgerð verður gerð grein fyrir hlutverkum, skyldum og reglum hagsmunaaðila hlutafélaga og leitast við að kortleggja við hvaða aðstæður stjórnendur, stjórnir fyrirtækja og hluthafar geta þurft að bera skaðabótaábyrgð. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar voru þær að þrátt fyrir að tekin hafi verið stór skref til að efla umræðu og fræðslu um hagsmunaárekstra og bætta stjórnarhætti fyrirtækja, hefur ekki verið nægilega langt gengið í þeim efnum. Á meðan stjórnarháttaumræðan snýr frekar að því að bæta stöðu hluthafa hefur minni áhersla verið lögð á hvernig leysa skuli eða koma í veg fyrir hagsmunaárekstra milli stjórnenda og hluthafa.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Elsa Eðvarðsdóttir 1978-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/19249
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/19249