Back to search

Reykjavík University

Einkaréttarlegar kröfur í sakamálum -með sérstöku tilliti til líkamsárása

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um einkaréttarkröfur sem hafðar eru upp í sakamáli með heimild í 2. mgr. 2. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, sem rekið er eftir reglum XXVI. kafla sömu laga. Um mikilvæga heimild er að ræða þar sem það hefur í för með sér mikið hagræði fyrir brotaþola að eiga þess kost að koma einkaréttarkröfu sinni að samhliða refsikröfu ákæruvalds í sakamáli. Í ritgerðinni er fjallað um einkaréttarkröfur brotaþola og þau úrræði sem hann hefur til að fá tjón sitt bætt eftir íslenskum lögum. Fjallað er um þróun sakamálaréttarfars og einkaréttarkafna hérlendis. Málsforræðisreglan er skoðuð með hliðsjón af þeim möguleikum sem standa brotaþola til boða og í því samhengi eru reglur um sönnun í íslenskum rétti skoðaðar og sá munur sem gerður er á kröfum til sönnunar annars vegar í sakamáli og hins vegar í einkamáli. Farið er yfir meginreglur íslensks skaðabótaréttar, vátryggingaréttar auk þess að gerð er grein fyrir lögum um skyldu ríkisins til greiðslu bóta til handa þolendum afbrota. Til samanburðar er farið yfir þær reglur sem gilda í dönskum og norskum rétti um meðferð einkaréttarkrafna. Einnig er í ritgerðinni að finna umfjöllun um refsikenndar skaðabætur og tilurð þeirra í íslenskum rétti. Samhliða umfjöllun vann höfundur rannsókn á dómum Hæstaréttar í íslenskum sakamálum vegna líkamsárása. Þar var m.a. horft til frávísunar á kröfum og upphæð dæmdra krafna. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa skýrari mynd af því hvernig farið er með slíkar kröfur. Yfir það tímabil sem rannsókn tók til var meðalupphæð dæmdra bóta í málum þar sem sakfellt var fyrir refsikröfu og bótakrafa tekin til greina 263.000 krónur en bótakrafa brotaþola hljóðaði að meðaltali uppá 630.000 krónur Greinilegur munur var á bótum sem dæmdar voru þegar sérfræðigögn lágu fyrir og þeim bótum sem dæmdar voru þegar slík gögn lágu ekki fyrir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Pétur Johnson 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/19248
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/19248

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Pétur Johnson 1985-. Einkaréttarlegar kröfur í sakamálum -með sérstöku tilliti til líkamsárása. 2014. http://hdl.handle.net/1946/19248