Back to search

Reykjavík University

Áhrif flokkun virkjunarkosta í rammaáætlun á eignarréttindi handhafa orkuréttinda

Abstract

dc:description.abstract

Rannsóknarspurning ritgerðarinnar er að greina „Áhrif flokkunar virkjunarkosta í rammaáætlun á eignarréttindi handhafa orkuréttinda“. Var leitast við að greina, annars vegar hvort flokkun virkjunarkosta rammaáætlunar feli í sér bótaskyldar takmarkanir skv. eignarréttarvernd 1. mgr. 72. gr. Stjskr. og 1. mgr. samningsviðauka nr. 1 við MSE og hins vegar hvort flokkun virkjunarkosta í orkunýtingarflokk rammaáætlunar kunni að styrkja eignarréttindi handhafa orkuréttinda á grundvelli sjónarmiða um réttmætar væntingar. Ritgerðinni er skipt í fimm meginkafla. Í öðrum kafla er greind eignarréttarvernd og skil milli bótaskyldra skerðinga og skerðinga sem heimilaðar eru án þess að stofnist bótaskylda, auk þess sem skoðuð voru sjónarmið um réttmætar væntingar. Í þriðja kafla eru orkuréttindi greind og takmarkanir er þau sæta. Í fjórða kafla eru lvo. og lögskýringargögn með þeim greind, með megináherslu á að greina takmarkanir og áhrif flokkunar virkjunarkosta í rammaáætlun. Í fimmta kafla eru settar fram niðurstöður um réttmætar væntingar, sem í grófum dráttum eru þær að litlar líkur séu á að handhafi orkuréttinda njóti réttmætra væntinga um að mega virkja orkuréttindi sín. Þó gæti sá eignarréttur að vissu leyti verið sterkari, þar sem óvissu með að virkjunarframkvæmd samrýmist skipulagsáætlunum sveitarfélaga, hafi verið eytt, auk þess sem svigrúm stjórnvalda við veitingu orkunýtingarleyfa kunni að hafa þrengst. Í sjötta kafla eru settar fram niðurstöður um hvort takmarkanir við flokkun virkjunarkosta rammaáætlunar séu bótaskyldar. Niðurstöðurnar, í grófum dráttum, eru að litlar líkur eru á að takmarkanir feli í sér bótaskyldar skerðingar. Þó kunni bótaskylda að stofnast við friðlýsingu eða við það að virkjunarkostir verði lengi í bið- og/eða verndarflokki, þannig að takmörkun rammaáætlunar teljist varanleg

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Huginn Rafn Arnarson 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/19243
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/19243

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Huginn Rafn Arnarson 1987-. Áhrif flokkun virkjunarkosta í rammaáætlun á eignarréttindi handhafa orkuréttinda. 2014. http://hdl.handle.net/1946/19243