Abstract
dc:description.abstractMarkmið ritgerðarinnar er skoða hvernig brotið er gegn vörumerkjarétti í tengslum við viðskipti á netinu. Leitast er við að ná utan um helstu brot sem vörumerkjaeigendur þurfa að vera meðvitaðir um auk þess sem úrræði við brotum gegn réttindum þeirra eru skoðuð. Í fyrsta kafla eru vörumerkjaréttindi skilgreind og fjallað er um gildi þeirra og verðmæti. Fjallað er um hugverkaréttindi almennt og sérstaða vörumerkja er kynnt. Í öðrum kafla er fjallað um lagareglur, fyrst alþjóðlega samninga og stofnanir, því næst reglugerðir og tilskipanir um vörumerkjarétt innan Evrópusambandsins og lokum íslenskt regluverk sem snýr að vörumerkjavernd. Í þriðja kafla er fjallað um brot gegn vörumerkjarétti og þau kynnt með áherslu á sölu á fölsuðum varning á netsölutorgum annarsvegar og notkun verndaðra vörumerkja sem auglýsingavaka á leitarvélum internetsins hinsvegar. Í fjórða kafla eru afleiðingar slíkrar starfsemi áréttaðar og í þeim fimmta eru úræði vörumerkjaeigenda og stjórnvalda kynnt. Við túlkun á lagareglum er aðallega litið til úrlausna Evrópudómstólsins auk íslenskra úrskurða og dóma. Vörumerkjaréttindi þurfa sérstaka vernd með tilliti til netviðskipa en með nýrri tækni hafa komið fram nýjar spurningar um lagalegan ágreining sem eflaust verða til umræðu á komandi árum. Í ritgerð þessari er gildandi réttur skilgreindur auk þess sem möguleikar til úrbóta eru skoðaðir.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jóhanna Edwald 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/19220
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/19220