Back to search

Reykjavík University

Skálagatapressa

Abstract

dc:description.abstract

Verkefnið fjallar um að auka rekstraröryggi lyftara sem notaður er á vinnusvæði Norðuráls á Grundartanga, inn í steypuskála fyrirtækisins. Til þess að auka rekstraröryggi lyftarans er hannaður búnaður sem vinnur verk sem lyftarinn er notaður í en hentar ekki fyrir. Starfsmenn steypuskálans vinna á þessum lyftara m.a. við að losa efni úr skálum sem skafið er úr biðofnunum eftir að þeir hafa verið fylltir. Þá eru óhreinindi skafin ofan af álinu og til verður það sem kallað er dross. Eftir að drossið hefur farið ofan í skálarnar er það pressað og látið kólna og til verður það sem í daglegu tali er kallað drosskaka eða bara kaka. Því næst er kakan kæld því að taka skálarnar upp með lyftaranum og hvolfa úr þeim í sérstaka kælikassa. Þetta tekst ekki alltaf því að ál vill storkna fast í drengötum sem eru á botni skálanna og eru þrjú talsins (sjá mynd 8). Þá grípa lyftaramennirnir til þess ráðs að hrista skálarnar upp og niður með lyftaranum sem veldur ómældu álagi á gálga og vökvakerfi hans. Afleiðingarnar eru tíðar bilanir á lyftaranum. Í verkefninu eru skoðaðar nokkrar lausnir á þessu vandamáli. Sú álitlegasta er svo valin og búnaður til að hreinsa úr götunum hannaður: Skálagatapressa sem notar tjakka til að þrýsta storknuðu áli úr drengötunum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ásgeir Kristinsson 1966-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/19006
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/19006

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ásgeir Kristinsson 1966-. Skálagatapressa. 2014. http://hdl.handle.net/1946/19006