Abstract
dc:description.abstractViðfangsefni þessarar ritgerðar er að skoða lögræðismál fatlaðs fólks og rétt þess til að njóta lögformlegs hæfis síns eins og það er verndað í 12. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF). Í ritgerðinni er notast við fötlunarfræðileg sjónarhorn til dýpkunar á lögfræðilegri greiningu á mannréttindaþróun fatlaðs fólks. Síðustu áratugi hefur ákveðin viðmiðsbreyting átt sér stað sem lýst hefur verið sem þróun frá læknisfræðilegu eða einstaklingsbundnu sjónarhorni á fötlun yfir í félagslegra mannréttindasjónarhorn á fötlun. Í því felst að hætta þurfi að líta á fatlað fólk sem viðföng annarra í þörf fyrir vernd eða ölmusu en þess í stað viðurkenna það sem gerendur í eigin lífi sem eiga rétt á stuðning og þjónustu til að geta tekið þátt í samfélaginu til jafns við aðra. Þessi þróun helst jafnframt í hendur við þróun á inntaki jafnréttishugtaksins frá formlegu jafnrétti yfir í efnislegt jafnrétti. Gerð er grein fyrir því hvernig SRFF birtir þessa þróun en hún sést skýrlega í áherslu í 12. gr. á að fatlað fólk sé viðurkennt sem aðilar að lögum, njóti lögformlegs hæfis til jafns við aðra og njóti aðstoðar eða stuðnings ef þess þarf, frekar en það sé svipt þessum réttindum. Þá hefur Mannréttindadómstóll Evrópu jafnframt verið að nálgast þessa þróun í túlkun sinni á Mannréttindasáttmála Evrópu. Við greiningu á íslenskum lögræðislögum nr. 71/1997 og réttarframkvæmd þeirra ásamt lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk nr. 88/2011 er ljóst að breytinga er þörf til að uppfylla kröfur 12. gr. SRFF. Helstu tillögurnar sem settar eru fram snúa að því að sníða lögræðissviptingum þrengri stakk en auka við heimildir persónulegs talsmanns sem skv. réttindagæslulögunum geta aðstoðað fatlað fólk við að beita lögformlegu hæfi sínu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Helga Baldvinsdóttir Bjargardóttir 1981-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/17313
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/17313