Abstract
dc:description.abstractMarkmið greinarinnar er að rannsaka hvernig til hefur tekist við innleiðingu stefnu Landsbankans í kjölfar þeirra breytinga sem gerðar hafa verið síðan 2010. Almennt er fjallað um stefnu og stefnumótun, breytingastjórnun og fyrirtækjamenningu. Ennfremur er fjallað um stefnu Landsbankans og megináherslur og markmið fyrirtækisins. Megindleg rannsókn var gerð þar sem spurningakönnun var lögð fyrir almenna starfsmenn bankans. Sérstaklega var horft til tveggja af fjórum meginstoðum bankans, þ.e. öflugrar liðsheildar og traustra innviða, og voru spurningar unnar út frá þessum tveimur stoðum. Leitast var við fá svar við því hvort almennir starfsmenn telji að þeir séu hluti af öflugri liðsheild og hvort þeir telji að starfsemin byggi á traustum innviðum. Helstu niðurstöður eru að almennt telja starfsmenn bankans að þeir séu hluti af öflugri liðsheild og að starfsemin byggi á traustum innviðum, þó svo að ýmislegt bendi til að hægt sé að gera betur við innleiðingu nýrrar stefnu. Lykilorð: Stefnumótun, innleiðing, breytingastjórnun, fyrirtækjamenning
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Borga Harðardóttir 1965-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 10Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/16302
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/16302