Reykjavík University
Hvað er líkt með X-teymum (X-teams) og verkefnateymum hjá fjórum verkefnastjórum í íslenskum framleiðslu- og frumkvöðlafyrirtækjum?
Abstract
dc:description.abstractX-teymi , „extreme teams“, eru skilgreind af Deborah Ancona og félögum sem teymi sem fara fram yfir takmörk sín. Þau fara lengra en þau halda að þau komist og leggja aðaláherslu á að einbeita sér að einu skýru takmarki. Rannsóknir sýna að X-teymi skila betri árangri en hefðbundin teymi. X-teymi tengjast bæði inn á við og út á við og tvinna saman nýsköpun, aðlögunarhæfni og framkvæmd. Hér er kenningin um X-teymi borin saman við verkefnateymi hjá fjórum íslenskum framleiðslu- og frumkvöðlafyrirtækjum sem vinna öll í ólíku viðskiptaumhverfi hvað varðar regluverk og pólitík. Fyrirtækin hafa öll náð forustu á alþjóðavettvangi. Með viðtölum við fjóra verkefnastjóra er kannað að hvaða leyti vinna verkefnateyma í fyrirtækjunum sé lík X-teymum. Skoðað er hvað einkennir teymisvinnuna, hverjir styrkleikar og veikleikar hennar eru og hvernig tengslum við hagsmunaaðila er háttað. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að íslensku fyrirtækin, sem hafa náð mjög langt hvert á sínu sviði í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi, eiga það sameiginlegt með X-teymum að þau hafa skýr markmið, einbeittan vilja til þess að ná takmarki sínu, velja teymismeðlimi eftir viðfangi hverju sinni og eru sveigjanleg og opin fyrir nýjungum hvað varðar ný tækifæri á markaði og eru því góðar fyrirmyndir fyrir önnur fyrirtæki í verkefnastjórnun. Lykilorð; teymi, X-teymi, verkefnahópur, verkefnateymi, árangur, þverfaglegur, sköpun, nýsköpun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sesselja Tómasdóttir 1963-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/16289
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/16289