Abstract
dc:description.abstractFilm in Iceland er verkefni á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sem hýst er hjá Íslandsstofu. Það sér um að kynna Ísland fyrir erlendum kvikmyndaframleiðendum sem ákjósanlegan stað fyrir kvikmyndatökur ásamt því að kynna lög um 20% endurgreiðslu kostnaðar við þá vinnu. Vitað er að 1. júlí 2013 rennur samningur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins við Íslandsstofu út. Eins og staðan er í dag er á huldu hvort sá samningur verður endurnýjaður eða hvort verkefnið fái nýtt heimili. Þar sem Film in Iceland hefur haft á að skipa aðeins einum starfsmanni undanfarinn áratug hefur sá starfsmaður sankað að sér mikilli reynslu og myndað í gegnum árin mjög sterkt tengslanet sem er gríðarlega mikilvægt að glatist ekki ef verkefnið skiptir um heimili. En hvernig má tryggja að þekkingin og reynslan glatist ekki sem mögulega hefði í för með sér að sá vöxtur sem verið hefur í framleiðslu erlendra kvikmynda á Íslandi haldi ekki áfram að vera stöðugur? Það er okkar mat að með því að nota verkfærið stefnumótun á verkefnið Film in Iceland og með því að greina hlutverk verkefnastjórans í þeirri vinnu megi mögulega koma í veg fyrir það. Við komumst að þeirri niðurstöðu með því að vinna hluta stefnumótunarferilsins með verkefnastjóra Film in Iceland sem og með því að taka viðtöl við helstu aðila kvikmyndaiðnaðarins á Íslandi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Aðalsteinn Haukur Sverrisson 1973-
- Elmar Bergþórsson 1979-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/16287
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/16287