Abstract
dc:description.abstractInna er skólakerfi sem er notað í 30 framhaldsskólum á landinu. Í Innu er haldið utan um nemendur og nám þeirra ásamt einkunnum og viðveru. Jafnframt eru stundatöflur og próftöflur útbúnar í kerfinu. Í Innu er hins vegar ekki hægt að setja fyrir neina heimavinnu, verkefni eða próf. Þetta þýðir að þeir sem nota kerfið í starfi sínu þurfa í flestum tilfellum að notast við tvö kerfi. Nokkrir framhaldsskólar sem nota Innu hafa lýst yfir áhuga á að bæta inn í hana verkefna- og prófakerfi. Þar kemur þetta lokaverkefni við sögu. Verkefnið snýst um að smíða frumgerð að nýrri einingu í skólakerfi Innu fyrir verkefna- og prófakerfi. Í kerfinu eiga kennarar að geta búið til verkefni og próf og sett fyrir nemendur sína sem í beinu framhaldi geta tekið þau. Verkefnið er sjálfstæð eining en er þó með tengingu við Innu í gegnum gagnagrunn þeirra. Í framtíðinni er vonast til þess að skólar sem noti Innu þurfi einungis að notast við eitt kerfi í starfi sínu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Andri Björn Ólafsson 1986-
- Björn Þorsteinsson 1989-
- Hlynur Sigurðsson 1989-
- Kristborg Anna Ámundadóttir 1991-
- Olga Rún Kristjánsdóttir 1989-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/16271
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/16271