Back to search

Reykjavík University

Offita kvenna, áhrif og úrræði

Abstract

dc:description.abstract

Offita er stærsta næringarfræðilega vandamál vestrænna ríkja nú til dags og sýnir það sig meðal annars á því að fleiri deyja af völdum offitu en vannæringu. Offita sem skilgreind er sem líkamsþyngdarstuðull ≥ 30 kg/m2 er afleiðing viðvarandi ójafnvægis á milli orkuinntöku og orkueyðslu. Afleiðingar offitu geta verið bæði líkamlegar og sálrænar. Líkamleg áhrif offitu geta verið allt frá viðvarandi verkjum í líkamanum sökum mikils álags á liði til alvarlegra sjúkdóma eins og hjarta- og æðasjúkdóma, sykursýkis 2 og krabbameins. Offita getur haft alvarleg áhrif á meðgöngu og barneignir meðal annars valdið ófrjósemi og erfiðleikum við fæðingu. Sálræn áhrif offitu geta verið slæm félagsleg staða kvenna sem glíma við offitu ásamt því að tengsl hafa fundist á milli þunglyndis og offitu. Til eru ýmis úrræði fyrir þá sem glíma við offitu. Almennt séð fela úrræðin í sér breytt mataræði, aukna hreyfingu og atferlismeðferð sem snýst um heilbrigðari lífsmáta. Lyfjagjöf og aðgerðir, sem úrræði ættu aðeins að nota þegar aðrar aðferðir sem fela í sér breyttan lífsstíl ganga ekki sem skildi. Á Íslandi eru staðir sem bjóða upp á úrræði fyrir konur sem glýma við offitu og má þar nefna Reykjalund, Heilsustofnun NLFÍ, Heilsuborg og Dansrækt JSB.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þórdís Skaptadóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16261
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16261

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þórdís Skaptadóttir 1988-. Offita kvenna, áhrif og úrræði. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16261