Back to search

Reykjavík University

Borgarbúskapur í fjölbýlishúsagörðum

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerðin fjallar um borgarbúskap (e. urban agriculture) í fjölbýlishúsagörðum. Reykjavík er ekki þéttbyggð og hefur tiltölulega stór svæði sem eru grasblettir og græn svæði. Sum þessara svæða eru garðar fjölbýlishúsa sem byggð voru í kringum sjöunda áratug síðustu aldar. Vitað er að borgarbúskapur getur stuðlað að bættri lýðheilsu og ýmiss konar umhverfis- og samfélagsbótum. Einnig hefur sannast að hann er efnahagslega raunhæfur kostur sem hjálpar borgum að verða sjálfbærari. Markmiðið með rannsókninni, sem þessi ritgerð fjallar um, er í fyrsta lagi að greina ávinning og hindranir borgarbúskapar og tengja við matvælakerfið og skipulag borga. Í öðru lagi að skoða mismunandi fjölbýlishúsasvæði innan Reykjavíkur og mæla stærðir fjölbýlishúsagarða og áætla ræktunarrými. Í þriðja lagi að kanna núverandi notkun íbúa á fjölbýlishúsagarðinum og viðhorf þeirra gagnvart því að nýta garðinn undir matjurtaræktun. Auk þess er athugað hvort íbúar eru tilbúnir að leggja fjármagn í garðrækt og hvort þeir eru tilbúnir að leigja út garðinn til þeirra sem hafa áhuga á borgarbúskap. Fræðilegar heimildir voru skoðaðar ásamt því að tvö viðtöl voru tekin. Síðan voru 9 svæði valin í jafnmörgum hverfum Reykjavíkur og stærð garðana mæld og stærð ræktunarrýmis áætluð. Spurningalisti var borinn út í 450 íbúðir á svæðunum og niðurstöður könnunarinnar greindar. Margs konar ávinning er hægt ná fram með borgarbúskap en hann hefur einnig sínar hindranir. Matvælakerfið myndi verða fyrir nokkrum áhrifum ef borgarbúskapur eykst og þá er hægt að fullyrða að það væri sjálfbærara. Mælingarnar sýna að fjölbýlishúsagarðarnir eru rúmgóðir og hver íbúð hefur frá tæpum 40 m2 og allt upp í rúma 100 m2 eftir því hvar hún er staðsett í borginni. Könnunin gefur vísbendingar um að fjölbýlishúsagarðarnir eru oftar en ekki mjög lítið notaðir ásamt því að þátttakendurnir voru frekar áhugasamir að taka þátt í matjurtaræktun í garðinum. Þátttakendurnir voru einnig áhugasamir um að leggja fé í matjurtaræktun en ekki eins áhugasamir um að leigja garðinn út til þeirra sem hefðu áhuga á ræktun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Arnþór Tryggvason 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16113
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16113

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Arnþór Tryggvason 1985-. Borgarbúskapur í fjölbýlishúsagörðum. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16113