Back to search

Reykjavík University

Fjölbreytileiki innan íbúðarhverfa í Reykjavík og húsnæði á viðráðanlegu verði

Abstract

dc:description.abstract

Eftirfarandi verkefni er meistaraprófsritgerð við námsbrautina umferð og skipulag við tækni-og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík og er athugun á því hvernig til hefur tekist við skipulag grunnskólahverfa í Reykjavík með tilliti til fjölbreytileika íbúða innan hverfa og framboðs húsnæðis á viðráðanlegu verði. Einnig eru metnir möguleikar fjölskyldna á að flytjast um set innan samagrunnskólahverfis eftir því sem hagir breytast. Tilgangur rannsóknarinnar er að kanna hvort íbúðarhverfi í Reykjavík bjóði upp á fjölbreytileika hvað varðar stærð og verð íbúða, þar með talið íbúðir á viðráðanlegu verði. Rannsóknin sýnir í hvaða hverfum þetta hefur tekist best og af því má draga lærdóma sem nýta má við skipulag í framtíðinni. Í rannsókninni eru fræðilegar heimildir rýndar, meðal annars varðandi hugtakið húsnæði á viðráðanlegu verði (e. affordable housing). Á Íslandi er hvorki til opinber skilgreining á húsnæði á viðráðanlegu verði né stefna um æskilegan eða ásættanlegan húsnæðiskostnað. Erlend dæmi um hvernig skipulagsáætlanir og aðgerðaáætlanir eins og opinberar húsnæðisáætlanir eru nýttar til að tryggja nægt framboð húsnæðis á viðráðanlegu verði, eru einnig skoðuð. Loks eru grunnskólahverfi í Reykjavík greind með tilliti til fjölbreytileika og framboðs á húsnæði á viðráðanlegu verði. Niðurstaða rannsóknarinnar er að húsnæði á viðráðanlegu verði er ekki að finna í borginni þar sem húsnæðiskostnaður reyndist alls staðar yfir viðráðanlegum mörkum tekjulægsta hópsins. Einnig var húsnæðiskostnaður gjarnan lægra hlutfall af ráðstöfunartekjum leigjenda en þeirra sem búa í eigin húsnæði. Þetta sýnir mikilvægi þess að ríki og sveitarfélög sameinist um að skapa húsnæðiskerfi sem gerir lágtekjufólki og almennu launafólki kleift að komast yfir öruggt og viðráðanlegt húsnæði. Yfirvöld geta horft til ýmissa þátta í stefnum annarra landa við mótun stefnu í húsnæðismálum hér á landi. Nokkrum erlendum húsnæðisstefnum eru gerð skil í fræðilegum hluta verkefnisins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hildur Freysdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16109
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16109

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hildur Freysdóttir 1984-. Fjölbreytileiki innan íbúðarhverfa í Reykjavík og húsnæði á viðráðanlegu verði. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16109