Reykjavík University
Upptaka reglna um nýtt eftirlitskerfi með fjármálamörkuðum inn í EES-samninginn
Abstract
dc:description.abstractÁrið 2010 samþykktu Evrópuþingið og Ráðherraráðið löggjöf um nýtt eftirlitskerfi með fjármálamörkuðum í Evrópu, en um samevrópskt eftirlitskerfi er að ræða. Umrætt eftirlitskerfi er byggt á reglugerðum sem lúta að stofnun Kerfisáhætturáðs og þriggja nýrra eftirlitsstofnana á sviði bankamála, verðbréfamála og vátryggingar- og starfstengdra lífeyrismála. Einna helst verður það reglugerð ESB nr. 1093/2010 um stofnun Evrópsks bankaeftirlits sem verður til umfjöllunar en líkt og titill ritgerðinnar gefur til kynna er það meginmarkmið hennar að rannsaka hvaða leiðir séu bærar fyrir Ísland og hin EFTA-ríkin að taka umræddar gerðir upp í EES-samninginn án þess að því tveggja stoða kerfi sem hann grundvallast á sé raskað. Í raun má segja að tvenns konar vandamál séu fyrir hendi þegar kemur að fyrrgreindum reglugerðum. Annars vegar er um að ræða álitaefni sem varða upptöku gerðanna í EES-samninginn, en ákvæði þeirra fara beinlínis á skjön við tveggja stoða kerfi samningsins, þar sem annarri stoðinni, ESB-stoðinni, eru veittar valdheimildir til þess að taka einhliða ákvarðanir sem eru bindandi fyrir hina stoðina, EES-stoðina, án þess að hægt sé að endurskoða slíkar ákvarðanir á sameiginlegum vettvangi. Hins vegar eru það síðan stjórnskipuleg álitaefni sem vakna þegar kemur að því að innleiða reglugerðirnar í landsrétt eftir að þær hafa verið teknar upp í EES-samninginn, en þær munu að öllum líkindum fela í sér umtalsvert framsal á ríkisvaldi til stofnana EFTA ef EES-aðlögun þeirra verður þannig úr garði gerð að þær valdheimildir sem eftirlitsstofnununum eru fengnar í reglugerðunum, verði framseldar til stofnana EFTA. Leitast verður við finna tillögur að lausn á þessum vandamálum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sunna Elvira Þorkelsdóttir 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/15970
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/15970