Abstract
dc:description.abstractMeginmarkmið þessarar ritgerðar er afmörkun á refsivernd óeinkennisklæddra lögreglumanna innan ákvæða 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með hliðsjón af dómaframkvæmd í sakamálum er varða brot gegn óeinkennisklæddum lögreglumönnum. Gerð verður grein fyrir þeim heimildum sem gilda um störf óeinkennisklæddra lögreglumanna. Verður 106. gr. hgl. gerð skil með áherslu á þau refsiréttarlegu atriði ákvæðisins er snúa að refsivernd og litið til norræns réttar til samanburðar. Þá verður leitast við að afmarka þau atriði er áhrif hafa haft á sönnunarmat í dómaframkvæmd hérlendis vegna brota gegn óeinkennisklæddum lögreglumönnum. Loks verður leitast við að svara þeirri spurningu hver raunveruleg refsivernd óeinkennisklæddra lögreglumanna er á grundvelli 106. gr. hgl. Niðurstöður ritgerðarinnar eru þær helstar að torveld sönnunarbyrði um huglæga afstöðu geranda á verknaðarstundu dregur úr raunhæfu gildi þeirrar auknu refsiverndar lögreglumanna sem leiðir af ákvæðum 106. gr. hgl. Huglægri afstöðu til opinbers starfs, sem verknaðaraðstæðna í verknaðarlýsingu 106. gr. hgl., virðist að meginreglu mega jafna til ásetnings í þeim tilvikum er lögreglumenn eru einkennisklæddir á verknaðarstundu. Hafi lögreglumaður hins vegar þá verið óeinkennisklæddur ræðst sönnunarmat dómara, á huglægri afstöðu geranda, af þeim atvikum hverju sinni, er telja sýna fram á það, svo ekki verði véfengt með skynsamlegum rökum, að geranda hafi staðið ásetningur til að beina broti að lögreglumanni. Þá virðist mega leiða það af dómaframkvæmd að ákveðin hlutlæg atriði megi vera metin leiðbeinandi um huglæga afstöðu geranda til opinbers starfs óeinkennisklæddra lögreglumanna. Á það helst við um það sem fram þykir komið hverju sinni um framvísun viðkomandi lögreglumanna á lögregluskilríkjum með hliðsjón af þeirri meginreglu 1. mgr. 6. gr. reglugerðar um lögregluskilríki og notkun þeirra nr. 1052/2006, að óeinkennisklæddum lögreglumanni beri að jafnaði, að gera borgara það ljóst að hann sé lögreglumaður áður en hann beri upp erindi sitt við viðkomandi og það geti hann gert með lögregluskilríkjum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Rakel Guðmundsdóttir 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/15965
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/15965