Reykjavík University
Hluthafalýðræði : getur virk nýting réttinda hluthafa leitt til betri stjórnarhátta?
Abstract
dc:description.abstractRannsóknarspurning og markmið ritsmíðarinnar er að skoða hvort að aukin þátttaka og virkara lýðræði hluthafa geti leitt til betri stjórnarhátta innan hlutafélaga. Í því skyni verður kannað hvort að virk nýting réttinda sem hluthafar hafa á grundvelli hlutafjáreignar sinnar geti verið liður í að stefna að því markmiði. Áður en unnt er að svara þeirri spurningu er nauðsynlegt að skoða tiltekna þætti í þessu samhengi, svo sem einkenni hlutafélagaformsins, uppbyggingu á stjórnkerfi íslenskra hlutafélaga og þá hagsmuni sem litið er til við ákvarðanatöku hverju sinni. Það er grundvallarforsenda fyrir því að hluthafi geti nýtt þau réttindi sem hann hefur að hann hafi til þess vald. Hluthafar fara með ákvörðunarvald sitt á hluthafafundi sem fer með æðsta valdið í málefnum hvers félags. Það er því nauðsynlegt að líta til valdheimilda hluthafafundarins og takmarkana á því valdi. Að auki geta aðrir þættir skipt máli þegar hluthafi nýtir réttindi sín, til að mynda uppbygging eignarhalds og stærð félaga. Verður því litið til þess hvernig þessir þættir hafa áhrif á ákvarðanatöku hluthafans. Helsta niðurstaða ritgerðarinnar er sú að með virkri nýtingu þeirra réttinda sem hlutafélagalöggjöfin veitir hluthöfum er unnt að sporna gegn ýmsum óæskilegum aðgerðum stjórnenda og þannig sníða af tiltekna vankanta sem hlutafélagaformið hefur í för með sér. Með því móti er mögulegt að streitast gegn hneigð til hentisemi hjá stjórnendum, minnka líkur á ólögmætum viðskiptum tengdra aðila, stuðla að auknu aðhaldi og eftirliti með stjórninni og þannig bæta stjórnarhætti innan félaga. Þó ber ávallt að gjalda varhug við misnotkun valds hluthafanna enda felst það í eðli alls valds að hægt er að misnota það. Hvað sem því líður er útgangspunkturinn sá að mikilvægt er að hluthafar nýti réttindi sín og að leitað verði leiða til þess að hvetja þá til aukinnar þátttöku í starfsemi félaga.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kristín Eva Geirsdóttir 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/15957
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/15957