Back to search

Reykjavík University

Forgangur innstæðna með hliðsjón af meginreglu gjaldþrotalaga um jafnræði kröfuhafa o.fl.

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er fjallað um þær breytingar sem lög nr. 125/2008 um heimild til fjárveitinga úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði, hin svokölluðu neyðarlög, fólu í sér. Rannsóknarspurningin er hvort að jafnræði meðal kröfuhafa hafi verið brotið með neyðarlögunum. Með setningu neyðarlaganna var innstæðum veittur forgangur við slit fjármálafyrirtækja, sbr. 112. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl., 2. mgr. 103. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og 3. mgr. 10. gr. laga nr. 98/1999 um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta. Ritgerðin skiptist í í fjóra þætti. Í fyrsta lagi verður fjallað um flokkun krafan í þrotabúum. Því næst verður gerð grein fyrir meginreglunni um jafnræði kröfuhafa. Þá verður fjallað um neyðarlögin og að endingu verður fjallað um það þegar innstæðum var veittur forgangur við slit fjármálafyrirtækja. Í umfjölluninni um flokkun krafna í þrotabúum verður varpa ljósi á tilurð reglnanna um skuldaröðina sem fram koma í gjaldþrotalögunum. Áhersla verður lögð á umfjöllun um forgangskröfur sem fjallað er um í 112. gr. laga nr. 21/1991. Því næst verður fjallað um meginreglu gjaldþrotalaganna um jafnræði kröfuhafa og þær undantekningar sem gilda frá meginreglunni, hvar meginregluna er að finna og litið verður til þess hvernig jafnræði kröfuhafa kemur fyrir í dönskum og norskum rétti. Þar á eftir verður fjallað um neyðarlögin, tilurð þeirra og um hvað þau fjalla. Loks verður varpað ljósi á það hvernig innstæðum var veittur forgangur við slit fjármálafyrirtækja með setningu neyðarlaganna. Fjallað verður ítarlega um hugtakið innstæða eins og það kemur fyrir í lögum nr. 98/1999 um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta sem byggð eru á tilskipunum Evrópuráðsins og þingsins nr. 94/19/EB og nr. 97/9/EB. Við túlkun á hugtakinu innstæða hafa dómar Hæstaréttar mikla þýðingu og verða því helstu sjónarmið dómanna varðandi hugtakið gerð skil í ritgerðinni. Að lokum verða dregnar saman niðurstöður þar sem höfundur kemst að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið brotið gegn meginreglu umjafnræði kröfuhafa þegar innstæðum var veittur forgangsréttur með neyðarlögunum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Berglind Guðmundsdóttir 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/15944
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/15944

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Berglind Guðmundsdóttir 1983-. Forgangur innstæðna með hliðsjón af meginreglu gjaldþrotalaga um jafnræði kröfuhafa o.fl.. 2013. http://hdl.handle.net/1946/15944