Abstract
dc:description.abstractÍ ritinu er fjallað um regluna um fyrirtæki á fallandi fæti og hvaða skilyrði þurfa að vera til staðar til þess að unnt sé að byggja á henni. Í upphafi ritsins er fjallað almennt um samruna og mismunandi tegundir samruna og að því loknu verður gerð grein fyrir því hvað felst í samrunaeftirliti. Í öðru kafla ritsins fjallar höfundur um efnislegt mat á láréttum samrunum og gerð verður ítarleg grein fyrir þeim sjónarmiðum sem koma til skoðunar. Að auki verða evrópskar og íslenskar úrlausnir samkeppnisyfirvalda reifaðar til útskýringa. Þriðji kafli er svo þungamiðja ritsins en þar verður leitast við að útskýra hvað felst í reglunni um fyrirtæki á fallandi fæti og hvaða skilyrði þurfa að vera til staðar svo henni sé beitt. Gerð verður grein fyrir ákvörðunum samkeppnisyfirvalda í Evrópu sem snerta þróun á þeim skilyrðum sem til umræðu eru, og að lokum verður fjallað um skilyrðin og sönnunarbyrði samrunaaðila. Fjallað verður ítarlega um úrlausnir íslenskra samkeppnisyfirvalda og gerð verður grein fyrir beitingu innlendra samkeppnisyfirvalda á reglunni. Í ljós kemur að nokkuð ósamræmi er á milli íslenskrar framkvæmdar um sönnunarkröfur og þeirrar evrópsku. Reynt verður að varpa ljósi á hvort eitthvað sé sérstakt við þessar úrlausnir og ef svo er hvort að slíkt geti haft áhrif fordæmisgildi þeirra. Samkeppnisyfirvöld hér á landi hafa ekki slakað á sönnunarkröfum og virðast meðvituð um þá hættu sem stafar af beitingu þessarar undantekningarreglu. Loks er fjallað um helstu rök með og móti beitingu reglunar. Að lokum er umfjöllunin síðan dregin saman.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðmundur Haukur Guðmundsson 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/15924
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/15924