Back to search

Reykjavík University

Um takmarkaða ábyrgð í hlutafélögum og brottfall hennar: litið í gegnum lögpersónuna

Abstract

dc:description.abstract

Efnistökum ritgerðarinnar má skipta í tvo hluta. Í fyrri hluta ritgerðarinnar er fjallað um hlutafélagaformið, sögu þess og megineinkenni. Umfjöllunin er með sérstakri áherslu á takmarkaða ábyrgð hluthafa, og er þar fjallað um rökin sem að baki ábyrgðartakmörkun liggja, gagnrýni og upplýsingaskyldu hlutafélaga í ljósi ábyrgðartakmörkunar. Í síðari hluta ritgerðarinnar er fjallað um brottfall takmarkaðrar ábyrgðar í hlutafélögum og hina erlendu félagaréttarreglu „piercing the corporate veil“. Er þar sérstaklega skoðuð tilvist slíkrar brottfallsreglu ábyrgðartakmörkunar í breskum og dönskum félagarétti. Í ritgerðinni er varpað fram tveimur rannsóknarspurningum og leitast við að svara þeim í síðari hluta hennar. Annars vegar hvort ólögfesta brottfallsreglu takmarkaðrar ábyrgðar hluthafa í hlutafélögum sé að finna í íslenskum rétti. Og hins vegar hvort þörf sé fyrir slíka reglu hérlendis. Ekki er slíka brottfallsreglu ábyrgðartakmörkunar að finna í íslenskri hlutafélagalöggjöf. Í ritgerðinni er því rannsökuð dómaframkvæmd Hæstaréttar sem snertir rannsóknarefnið. Niðurstaða höfundar er sú að slík undanþáguregla takmarkaðrar ábyrgðar hluthafa verður ekki með réttu leidd af íslenskri dómaframkvæmd á sviði félagaréttar. Til þess að svara síðari rannsóknarspurningu ritgerðarinnar um hvort þörf sé fyrir slíka reglu er skoðuð sú vernd og þau úrræði sem kröfuhafar hlutafélaga njóta að íslenskum lögum. Af slíkri skoðun leiðir að kröfuhafar hafa hugsanlega þörf fyrir brottfallsreglu ábyrgðartakmörkunar hluthafa þegar skaðabótareglum verður ekki beitt. Þessar niðurstöður ritgerðarinnar eru dregnar saman í fjórða kafla hennar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Halldór H. Gröndal 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/15917
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/15917

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Halldór H. Gröndal 1988-. Um takmarkaða ábyrgð í hlutafélögum og brottfall hennar: litið í gegnum lögpersónuna. 2013. http://hdl.handle.net/1946/15917