Abstract
dc:description.abstractMarkmið verkefnisins er að kanna hvort það sé arðbært að fjárfesta í fasteignafélaginu FAST-1 slhf. Félagið var formlega stofnað í maí 2012 af umsjónaraðilum félagsins, VÍB, eignastýringaþjónustu Íslandsbanka og ráðgjafafyrirtækisins Contra auk fjárfesta sem komu að verkefninu. Farið er í grunngreiningu á rekstri félagsins og lagt í umfangsmikla arðsemisútreikninga. Áætlað var sjóðstreymi fjármagns og fundið hreint núvirði rekstrarins auk þess sem helstu arðsemisniðurstöður voru skoðaðar. Þá var notast við Monte Carlo hermun til að kanna líkindadreifingu í niðurstöðum arðsemislíkansins við breytingu helstu óvissuþátta þess. Niðurstöður arðsemismatsins sýna fram á það að hreint núvirði er jákvætt sem segir okkur að fjárfestingin sé arðbær. Niðurstöður Monte Carlo hermunar sýna fram á að tæplega 53% líkur séu á því að hreint núvirði verði jákvætt. Niðurstöðurnar eru þó ekki ótvíræðar. Niðurstöður hermunar sýna að smávægilegar breytingar á lykilstærðum leiða til þess að hreint núvirði verði neikvætt. Þetta undirstrikast í niðurstöðum úr næmnigreiningu á arðsemislíkani. Þá sést það jafnframt að rekstrarform félagsins er hagstæðara fyrir ákveðna fjárfesta en aðra, nánar tiltekið lífeyrissjóði sökum skattahagkvæmis. Lokaniðurstaðan er því sú að fjárfesting í félaginu er líklegri en ekki til að verða arðbær en hafa verður í huga að smávægilegar breytingar á aðstæðum geta breytt þeirri niðurstöðu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Gísli Halldórsson 1990-
- Hörður Pétursson 1989-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/14156
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/14156