Back to search

Reykjavík University

Meiðslatíðni í körfuknattleik kvenna

Abstract

dc:description.abstract

Rannsókn þessi er um meiðslatíðni í körfuknattleik hjá konum. Markmið rannsóknarinnar var að sjá hver meiðslatíðnin er hjá konum í körfuknattleik á Íslandi. Einnig að sjá muninn á meiðslatíðni hjá konum og körlum hér á landi. Rannsóknin var gerð með spurningalista og voru spurningarnar allar lokaðar. Meiðsli kvenna voru athuguð á tímabilunum 2010-2011 og 2011-2012. Sendur var spurningalisti til allra félaga í efstu deild kvenna. Meiðslatíðnin hjá konunum var svo borin saman við meiðslatíðni karla í efstu deild á Íslandi. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að meiðsli kvenna á Íslandi eru mikil í körfuknattleik. Meiðsli kvenna tímabilið 2010-2011 var 68% og 62% tímabilið 2011-2012. Konur meiðast hinsvegar minna en karlar í efstu deild. Meiðslatíðni karlanna var 68% fyrra tímabilið og 73% seinna tímabilið. Ökkli og hné eru algengustu meiðsli í körfuknattleik á Íslandi. Konur eru með fleiri hnémeiðsli en karlar og samræmist það erlendum rannsóknum. Minniháttar meiðsl voru í meirihluta hjá báðum kynjum. Konur eru með fleiri meiðsli sem tóku lengur en tvo mánuði að jafna sig.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristinn Magnússon 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12499
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12499

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristinn Magnússon 1982-. Meiðslatíðni í körfuknattleik kvenna. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12499