Back to search

Reykjavík University

Samtaka mæðgur : námskeið ætlað unglingsstúlkum og mæðrum þeirra með áherslu á eflingu hreyfingar og tengsla

Abstract

dc:description.abstract

Rannsakendur hafa margsinnis sýnt fram á kosti hreyfingar og þau jákvæðu áhrif sem hún hefur á líkamlega og andlega líðan almennings. Þrátt fyrir það hefur hreyfingarleysi aukist síðustu árin og nú ber svo við að hreyfingarleysi er orðinn einn af fjórum stærstu áhættuþáttunum þegar kemur að dauðsföllum almennings um allan heim. Rannsóknir hafa ítrekað sýnt að hreyfingarleysi er algengt á meðal unglingsstúlkna en stór hluti þeirra nær ekki að uppfylla lágmarkskröfur um hreyfingu samkvæmt hreyfiráðleggingum. Ýmsar ástæður liggja að baki og margir þættir hafa áhrif á hvort stúlkur á þessum aldri stunda hreyfingu eða ekki. Rannsakendur hafa bent á þau miklu áhrif sem foreldrar hafa á hegðun og viðhorf barna sinna. Með ýmsu móti geta foreldrar hvatt unglingsstúlkur sínar til að hreyfa sig eins og að vera góðar fyrirmyndir með því að hreyfa sig sjálf og lifa heilbrigðu líferni. Ein af þeim aðferðum sem hefur gefið góða raun er að mæður sameinist í hreyfingu með dætrum sínum. Í þessu verkefni má sjá hönnun og skipulag námskeiðs sem ætlað er unglingsstúlkum á aldrinum 13-15 ára og mæðrum þeirra. Námskeiðið er hugsað sem tækifæri fyrir mæðgur til að efla hreyfingu og tengsl í gegnum sameiginlega hreyfingu

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hrund Sigurðardóttir 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12490
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12490

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hrund Sigurðardóttir 1983-. Samtaka mæðgur : námskeið ætlað unglingsstúlkum og mæðrum þeirra með áherslu á eflingu hreyfingar og tengsla. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12490