Back to search

Reykjavík University

Áhrif Skólahreysti á grunnskólanemendur

Abstract

dc:description.abstract

Markmið með þessari rannsókn er að kanna hvort áhugi nemenda á hreyfingu aukist með tilkomu Skólahreysti og hvort þeir telji keppnina hafa félagslega jákvæð áhrif á nemendur í fjórum grunnskólum landsins, þremur á Suðurnesjum og einum í Kópavogi. Í ljósi þessa var framkvæmd rannsókn. Rannsóknin kannaði viðhorf nemenda til Skólahreysti, hreyfingu þeirra og markmiðssetningu. Helstu niðurstöður leiddu í ljós að 72% nemenda þessara fjögurra skóla hafa áhuga á Skólahreysti, 31% gátu hugsað sér að keppa fyrir hönd síns skóla. Tæpur helmingur nemenda (45%) taldi Skólahreysti hvetja sig til frekari hreyfingar og töldu 94% keppnina góða fyrir félagslíf skólans. Meirihluti barna og unglinga stunda íþróttir eða hreyfingu utan skólatíma, þar segjast 67% nemenda æfa með íþróttafélagi og 56% þeirra æfa í líkamsræktarstöð. Rannsóknin leiddi í ljós að margir nemendur setja sér markmið tengd hreyfingu og fylgja þeim eftir með góðum árangri. Rannsakendur spurðu stofnendur Skólahreysti, Andrés Guðmundsson og Láru Berglindi Helgadóttur, nokkurra spurninga um keppnina, upphaf hennar og þróun. Skólahreystikeppnin er liðakeppni milli grunnskóla landsins sem var fyrst haldin árið 2005 og er fyrir nemendur í 9. og 10. bekk. Keppnin gengur út á það að hvetja börn og unglinga til að taka þátt í íþróttum sem eru byggðar á grunni almennrar íþróttakennslu skólanna. Skólahreysti er því uppskrift að heilbrigðum lífsstíl þar sem jákvæð og heilbrigð upplifun mótar viðhorf ungmenna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Guðrún Bentína Frímannsdóttir 1988-
  • Íris Ósk Arnarsdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12465
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12465

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún Bentína Frímannsdóttir 1988-; Íris Ósk Arnarsdóttir 1987-. Áhrif Skólahreysti á grunnskólanemendur. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12465