Reykjavík University
Skilyrði refsiábyrgðar og sönnun í sakamálum með áherslu á vafa sakborningi í hag og öfuga sönnunarbyrði
Abstract
dc:description.abstractRitgerðin skiptist í tvo hluta. Fyrri hlutinn fjallar um formskilyrði refsiábyrgðar óháð sönnun en seinni hlutinn um sönnun í sakamálum. Í báðum hlutum er sérstök áhersla lögð á vafa til handa sökuðum manni. Í hefðbundinni kennslu í refsirétti og sakamálaréttarfari kemur fram að sakborningur eigi að njóta vafans í sakamálum og ekki megi leggja sönnunarbyrðina á hann. Minna fer hins vegar fyrir umfjöllun um hvaða vafa nákvæmlega átt er við og hvenær sönnunarbyrðinni hefur ranglega verið velt á sakborning, í ritgerðinni kallast síðastnefnt „öfug sönnunarbyrði“. Í íslenskum fræðiritum er heldur ekki að finna heildstæða umfjöllun á einum stað um hin margvíslegu formskilyrði refsiábyrgðar óháð sönnun. Ritgerðin byggir að mestu á skoðun dóma og leitast er við að ná utan um fyrrnefnd álitaefni, þ.e. formskilyrði refsiábyrgðar eru tekin saman og greind, fjallað er ítarlega um sönnun í sakamálum, skoðað hvaða vafa ber að skýra sökuðum manni í hag og hvenær telja megi með réttu að sönnunarbyrði hafi verið snúið við. Við skoðun á fyrrgreindum formskilyrðum kom í ljós að þau eru nokkuð umfangsmeiri, og beiting þeirra mun flóknari, en í fyrstu mætti ætla. Einnig hafa dómafordæmi Mannréttindadómstóls Evrópu mikil áhrif á þetta svið svo sem önnur í sambandi við sakamál. Í umfjöllun um sönnun og öfuga sönnunarbyrði er rökstutt að ekki er til neinn fastur eða áþreifanlegur punktur sem markar lok fullnægjandi sönnunar og upphaf öfugrar sönnunarbyrði. Rauði þráðurinn gegnum báða hluta ritgerðarinnar er eins og áður segir, skoðun á vafa í þágu sakbornings. Niðurstaða þeirrar skoðunar er að sé í sakamáli svigrúm til mats dómara á annaðhvort forms- eða efnisatriðum máls þá beri við það mat að skýra reglur þröngt og þar með allan vafa sakborningi í hag.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sverrir Halldórsson 1973-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/12389
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/12389