Back to search

Reykjavík University

Hlutlægnisskylda sakamálaréttarfars - Inntak hennar á mismunandi stigum málsmeðferðar sakamáls

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um hlutlægnisskyldu 3. mgr. 18. gr. og 2. mgr. 53. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála en hún gildir um störf ákærenda og þeirra sem rannsaka sakamál. Um mikilvæga réttaröryggisreglu er að ræða sem felur í sér að gæta skuli jafnt að atriðum sem horfa til sýknu og sektar og gildir á öllum stigum málsmeðferðar sakamáls, það er við rannsókn, ákvörðun um saksókn, málflutning fyrir dómi og áfrýjun. Í ritgerð þessari er því leitast við að skoða áhrif hlutlægnisskyldunnar á störf aðila á mismunandi stigum málsmeðferðar og hvaða skyldur og reglur af henni má leiða. Samhliða þeirri athugun er leitast við að skoða hvort eins rík skylda hvíli á þessum aðilum til að gæta að hlutlægnisskyldu á öllum stigum málsmeðferðar og hvort svigrúm sé til að víkja þar frá. Farið er í gegnum lög og lögskýringargögn, ásamt skrifum fræðimanna og dómaframkvæmd. Umfjöllun styðst einnig að miklu leyti við danskan rétt þar sem sambærileg sjónarmið gilda um störf ákæranda og þeirra sem rannsaka sakamál. Er sú umfjöllun samhliða umfjöllun um íslenskan rétt. Sú skoðun sem var framkvæmd miðaði að því að varpa ljósi á hvaða skyldur og sjónarmið gilda eftir atvikum um störf ákærenda og þeirra sem rannsaka sakamál með hliðsjón af hlutlægnisskyldunni. Eðli málsins samkvæmt leiða af hlutlægnisskyldunni ýmsar skyldur og sjónarmið sem mikilvægt er að gætt sé að á öllum stigum málsmeðferðar. Draga má þá ályktun að ekki hvíli eins rík skylda á þeim sem rannsaka sakamál til að gæta að hlutlægnisskyldunni líkt og ákærendum ber að gera. Gefa verður ákærendum þó svigrúm til að víkja frá hlutlægnisskyldunni að einhverju leyti við málflutning í ljósi þeirrar sönnunarbyrði sem lögð er á þá með lögum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Bjarki Ólafsson 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12360
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12360

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bjarki Ólafsson 1985-. Hlutlægnisskylda sakamálaréttarfars - Inntak hennar á mismunandi stigum málsmeðferðar sakamáls. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12360