Back to search

Reykjavík University

Refsiákvarðanir dómstóla: Samanburður á málum er varða stórfelld fíkniefnabrot og nauðgunarbrot

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er fjallað um refsiákvarðanir dómstóla stórfelldum fíkniefnamálum og nauðgunarmálum. Refsiákvarðanir dómstóla hafa sætt gagnrýni á undanförnum árum og þykja almennt mjög vægar, einkum í kynferðisbrotamálum. Gagnrýnin lítur einnig að því að ekki sé gætt samræmis í refsiákvörðunum milli ólíkra brotaflokka. Meginviðfangsefni ritgerðarinnar fólst í rannsókn á þeim þáttum sem áhrif hafa á ákvörðun refsingar í þessum brotaflokkum. Þá var gerð könnun á því hvort unnt sé að gera samanburð á þeim viðurlögum sem dæmd hafa verið og hvort sú gagnrýni sem dómstólar hafa sætt á refsiákvörðunum sínum eigi við rök að styðjast. Einnig var leitað svara við því hvað veldur hinni gríðarmiklu fjarlægð milli réttarvitundar almennings og refsiákvarðana dómstóla í þessum tveimur málaflokkum. Rannsókn höfundar leiddi í ljós að þau atriði sem áhrif hafa á refsingu í umræddum brotaflokkum eru mjög mismunandi og má þar nefna sakarferill þeirra sem dæmdir voru, ítrekunarsjónarmið, aldur brotamanna, einstaklingsbundnar aðstæður ofl. Samspil ýmissa annarra þátta hafa einnig áhrif á refsimat dómstóla sem vert er að hafa í huga þegar samanburður er gerður á refsingum milli svo ólíkra brotaflokka. Það er niðurstaða höfundar að allur samanburður á refsiákvörðunum dómstóla í stórfelldum fíkniefnamálum og nauðgunarmálum er í besta falli vafasamur. Ný norræn rannsókn á afstöðu almennings til refsinga leiðir í ljós að refsiþyngd dómstóla er í heildina vanmetin. Það er rík tilhneiging almennings að álíta að dómstólar muni taka vægt á máli og mun vægar en þeir sjálfir myndu gera. Rannsóknin styður því ekki kröfuna um þyngri refsivist. Hin mikla fjarlægð milli réttarvitundar almennings og refsiákvarðana dómstóla virðist skýrast að einhverju leyti af umfjöllun fjölmiðla um einstök dómsmál, sem fara gjarnan miklu offorsi um dómsniðurstöðu en veigra fyrir sér að nefna ástæðurnar sem liggja til grundvallar niðurstöðunni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigrún Helga Holm 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12358
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12358

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigrún Helga Holm 1984-. Refsiákvarðanir dómstóla: Samanburður á málum er varða stórfelld fíkniefnabrot og nauðgunarbrot. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12358