Reykjavík University
Meðalhófsregla við forsjársviptingu : hönd þín skal leiða en ekki meiða
Abstract
dc:description.abstractFriðhelgi einkalífs er varin af 71. gr. stjórnarskrárinnar. Í þeirri vernd felst að hver og einn hefur rétt til að lifa lífi sínu án afskipta hins opinbera eða annarra einstaklinga. Undir ákvæðið falla einnig friðhelgi heimilis og fjölskyldu. Í friðhelgi fjölskyldu felst að foreldrar hafa rétt á því að haga uppeldi barna sinna í samræmi við eigin lífsskoðanir og án afskipta hins opinbera. Sú takmörkun er á ákvæðinu að heimilt er vegna hagsmuna annarra að takmarka friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu ef hagsmunir annarra krefjast þess. Barnaverndarlöggjöfin byggir á þessari heimild. Markmið barnaverndarlaga er að hverju barni séu tryggðar uppeldisaðstæður í samræmi við velferð þess. Heildstæð barnaverndarlöggjöf á Íslandi á rætur sínar að rekja til laga um vernd barna og ungmenna, nr. 43/1932. Núgildandi barnaverndarlög, nr. 80/2002, hafa að geyma þær meginreglur sem eiga að gilda um velferð barna og þær málsmeðferðarreglur sem barnaverndaryfirvöld skulu lúta í afskiptum sínum af fjölskyldum. Sú meginregla birtist í barnaverndarlögunum að barnaverndaryfirvöld skulu gæta meðalhófs í meðferð mála sinna. Meðalhófsregla barnaverndarlaga byggir á meðalhófsreglu stjórnsýsluréttarins. Inntak meðalhófsreglunnar er að stjórnvöld skulu velja það úrræði sem vægast er og gæta hófs í beitingu þess úrræðis sem valið er. Almennt er viðurkennd sú regla í stjórnsýsluréttinum að ef stjórnvald hefur ekki gætt að málsmeðferðarreglum skuli ákvörðun ógild. Hins vegar er talið að barnaverndarmál séu stjórnsýslumál sérstaks eðlis, en í því felst að við úrlausn mála skal hagur barnsins ávallt lagður til grundvallar. Hæstiréttur hefur staðfest þá túlkun í dómum sínum að hagur barnsins skuli ávallt ganga framar hagsmunum foreldranna, jafnvel þótt slíkt leiði til þess að ákvörðun stjórnvalds sem bersýnilegir og grófir gallar eru á, nái fram að ganga.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Karen Rúnarsdóttir 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/12348
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/12348