Back to search

Reykjavík University

Tálbeitur - Greiningaraðferð við mat á lögmæti

Abstract

dc:description.abstract

Efni þessarar lögfræðilegu ritgerðar fjallar um notkun tálbeitu og hvaða aðferðafræði skuli beita við mat á því hvort notkun tálbeitu sé lögmæt. Meginmarkmið hennar er að draga saman ákveðna greiningaraðferð sem nota skuli í íslenskum rétti. Ritgerð þessari er skipt upp í fjóra hluta og sex kafla. Í I. hluta ritgerðarinnar er fjallað um afmörkun rannsóknarefnis, refsiréttarleg álitaefni sem rísa í tengslum við notkun tálbeita og almennt um rannsókn sakamála. Í 2. kafla er fjallað þá flokka sérstakra rannsóknaraðferða lögreglu sem kveðið er á um í ákvæði 89. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Í II. hluta ritgerðarinnar er fjallað um gildandi reglur um notkun tálbeitu á Íslandi, Danmörku og Noregi. Hugtakið tálbeita er skilgreint og gerð grein fyrir mismunandi tegundum tálbeita. Í III. hluta ritgerðarinnar er veitt yfirlit yfir greiningaraðferðir sem nýtast við mat á lögmæti notkunar tálbeitu og leitast við að svara því hvaða mælikvarða skuli nota í íslenskum rétti. Í 5. kafla er fjallað um mögulegar réttarfars- og refsiréttar- og einkaréttarlegar afleiðingar sem notkun ólögmætrar tálbeitu hefur í för með sér. Í IV. hluta ritgerðarinnar er að finna niðurstöður, skrár og viðauka. Niðurstaðan var sú að notkun tálbeitu telst ólögmæt ef hún kallar fram refsiverða háttsemi sem annars hefði ekki verið framin. Á sama hátt telst notkun tálbeitu lögmæt ef hún leiðir til þess að sá sem aðgerðin beinist gegn fremur refsiverða háttsemi sem hann hefði hvort eð er framið. Styðjast má við fjórar mismunandi tegundir greiningaraðferða við mat á lögmæti notkunar tálbeitu, það er: 1) hlutlægan mælikvarða 2) huglægan mælikvarða 3) orsakatengsl 4) greiningaraðferð Mannréttindadómstóls Evrópu. Komist var að þeirri niðurstöðu að í íslenskri réttarframkvæmd beri að líta til meginsjónarmiða sem Mannréttindadómstóllinn hefur lagt til grundvallar í úrlausnum sínum og þar með afstöðu dómstólsins við val á mælikvarða við mat á lögmæti notkunar tálbeitu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Karólína Finnbjörnsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/10978
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/10978

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Karólína Finnbjörnsdóttir 1984-. Tálbeitur - Greiningaraðferð við mat á lögmæti. 2012. http://hdl.handle.net/1946/10978