Back to search

Reykjavík University

Kynjakvóti í hlutafélögum: Hvernig er hann, hvers vegna og hvað þarf að gerast til að hann verði virtur?

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerðin fjallar um lágmarks hlutföll hvors kyns, kynjakvóta, í stjórnum hlutafélaga, hvernig hann er, hvers vegna og hvað þurfi að gerast til að hann verði virtur. Í ritgerðinni er leitast við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningum: 1) Hvernig eru ákvæði um kynjakvótann í hlutafélagalögunum? 2) Hvers vegna ættu fyrirtæki að fjölga konum í stjórnum sínum? 3) Hvað þarf að gera til að kynjakvótinn verði virtur? Litið var til laga annarra landa og reynslu þeirra, auk ýmissa rannsókna. Íslenska lagaákvæðið um kynjakvótann var borið saman við það norska. Einnig er litið til reynslu Svía og Breta sem hafa ekki lögfest kynjakvótann, heldur hvatt fyrirtæki til að jafna kynjahlutföll í stjórnum sínum með ólíkum hætti. Tilgangurinn með rannsókninni var að varpa ljósi á til hvaða fyrirtækja kynjakvótinn næði, hvaða ávinning fyrirtæki hafi af því að hafa blandaðar stjórnir og hvað þurfi að gera til að ná kynjakvótanum, bæði varðandi stjórnarhætti fyrirtækja og hugsanlegar lagabreytingar. Konur eru í miklum minnihluta stjórnarmanna og var einnig leitast við að greina hvaða ástæður gætu legið þar að baki. Rannsóknir sýna að því jafnari sem kynjahlutföll eru í stjórn fyrirtækis, því meiri verður arðsemi þess og stjórnarhættir betri. Stjórnin getur öðlast nýja sýn á viðfangsefni, betri ákvörðunartöku og lagt meiri áherslu á ýmis konar eftirlit með rekstri fyrirtækisins. Auka þarf umræður um hvers vegna fyrirtæki ættu að fjölga konum í stjórnum sínum og framkvæmdastjórnum, upplýsingagjöf um hlutföll kynjanna í stjórnum og stjórnunarstöðum þarf einnig að efla. Umræður og upplýsingar spila stóran þátt í að kynjakvótanum verði náð og er ritgerðin einn þáttur í því. Vonast er til að ritgerðin verði hluthöfum fyrirtækja hvatning til að jafna kynjahlutföllin í stjórnum fyrirtækja sinna, að hluthafar líti ekki á kynjakvótann sem kvöð heldur sjái ávinning í að fullnægja kynjakvótanum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir 1978-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/10711
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/10711

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þórdís Sif Sigurðardóttir 1978-. Kynjakvóti í hlutafélögum: Hvernig er hann, hvers vegna og hvað þarf að gerast til að hann verði virtur?. 2012. http://hdl.handle.net/1946/10711