Back to search

Agricultural University of Iceland

Endurlífgunborgarhluta: umbreyting iðnaðarsvæðis í vistvæna íbúabyggð.

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessa verkefnis var að leita svara við eftirfarandi spurningu: Hvernig er hægt að glæða gamalt iðnaðarsvæði við Elliðavog í Reykjavík lífi út frá hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar, fjölga íbúum og um leið stuðla að bættum lífsgæðum ? Til að nálgast verkefnið var hugtakið sjálfbærni skilgreint og lykilatriði vistvænnar og sjálfbærrar byggðar. Skoðuð eru dæmi um vistvæna og sjálfbæra byggð í borgum og bæjum erlendis og það litla sem gert hefur verið hér á landi. Gerð er grein fyrir stöðu hverfisins í dag og síðan er farið í greiningarvinnu þar sem lögð er áhersla á þætti sem tengjast hugmyndafræði sjálfbærni. Reynt var að svara spurningunni með því að nýta niðurstöður greiningarvinnu sem grunn í hönnunar – og skipulagsvinnu byggðri á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar. Í hönnunartillögunni er gert ráð fyri blandaðri byggð þar sem, atvinnustarfsemi, íbúðir og félagsleg borgarrými eru í fyrirrúmi. Húsin sem fyrir eru verði að mestu látin halda sér, vatns- og orkunotkun minnkuð, matvælaframleiðsla verður færð inn í hverfið og græn svæði aukin. Vægi bifreiða innan hverfisins verður minnkað og hjólandi og gangandi vegfarendur settir í forgang. Lykilatriði hönnunarinnar eru dregin fram og útskýrð á sjónarænan hátt með teikningum og myndum. Allar breytingarnar eiga að skapa aukin lífsgæði og gera hverfið að fyrirmynd fyrir ábyrgan lífsstíl og dæmi um getu til aðgerða sem er eitt meginhlutverk hugmyndafræði sjálfbærni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Edda Ívarsdóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9432
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9432

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Edda Ívarsdóttir 1979-. Endurlífgunborgarhluta: umbreyting iðnaðarsvæðis í vistvæna íbúabyggð.. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9432