Back to search

Agricultural University of Iceland

Skipulag- og hönnun umhverfis Skrímslasetursins á Bíldudal

Abstract

dc:description.abstract

Markmiðið með þessari ritgerð er að leita svara við eftirfarandi spurningu: Hvernig getur hönnun lóðar og skipulagning nánasta umhverfis Skrímslasetursins á Bíldudal orðið, sem hefur beina skírskotun til þema þess, sæskrímslanna og nýtist til útiveru og fræðslu? Hvernig er ennfremur hægt að skapa miðbæjar- og torgstemningu á þessu svæði? Til að leita svara við þessum spurningum var rýnt í þær heimildir sem Skrímslasetrið á Bíldudal byggir starfsemi sína á, sögur af sæskrímslum og fólkinu sem kynntist þeim af eigin raun. Auk þess var hugmyndum safnað saman sem fæðst hafa meðal þeirra sem unnið hafa við uppbyggingu Skrímslasetursins og greiningar gerðar á svæðinu umhverfis það. Leitast er við að svara spurningunni með skipulags- og hönnunartillögu sem byggð er á greiningum, hugmyndum úr umhverfissálfræði og tekur mið af hugtakinu „aðgengi fyrir alla“. Í skipulags- og hönnunartillögunni er lagt til að áherslan verði aðallega á fólk, en ekki bíla með því að loka að mestu leyti fyrir umferð akandi vegfarenda. Þá eru gerðar tillögur að endurbyggingu og tilfærslu á húsum til að mynda heildrænni götumynd við athugunarsvæðið. Þar með er lagður grunnur að þeirri torg- og miðbæjarstemningu sem leitast var eftir. Torgið er gert eftirsóknarvert dvalarsvæði fyrir íbúa Bíldudals og ferðafólk. Að lokum er gerð tillaga að hönnun leiksvæðis á milli Tjarnarbrautar og Skrímslasetursins sem miðar að því að vekja athygli vegfarenda á því sem fer fram í setrinu og hvetja þá til að staldra við.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ása Dóra Finnbogadóttir 1972-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9431
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9431

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
related terms
citation

Ása Dóra Finnbogadóttir 1972-. Skipulag- og hönnun umhverfis Skrímslasetursins á Bíldudal. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9431