Back to search

Agricultural University of Iceland

Gæði götuhliða í miðborg Reykjavíkur

Abstract

dc:description.abstract

Rannsóknarspurning þessarar rannsóknar er „Hvernig styðja götuhliðar jarðhæða nokkurra valinna gatna í Reykjavík við mannlífið fyrir framan þær?“ Hún byggir á þeirri tilgátu að það sé hægt að hafa áhrif á möguleika fólks til að hittast, sjást og heyrast. Markmið rannsóknarinnar er að greina götuhliðar út frá breytum, sem eru búnar til úr atferlisrannsóknum annarra. Einnig að sýna húseigendum möguleika þeirra og borgaryfirvöldum hvernig þau geta aukið áhuga húseigenda á að breyta götuhliðum. Hver götuhlið fær einkunnir fyrir sjö eigindlegar breytur eða flokkunarbreytur. Matið er byggt á ljósmyndum af götuhliðunum. Niðurstöður eru sýndar á kortum, ljósmyndum og stöplaritum og sýna þær einungis tvö jákvæð atriði fyrir svæðið í heild. Annars vegar eru atvinnueiningar margar hæfilega mjóar á athugunarsvæðinu. Hins vegar eru þrjár af hverjum fimm götuhliðum upplýstar á kvöldin og nóttinni. Þar sem svo margir þættir eru síðri en þessir tveir er vel hægt að segja að svæðið sé of tilbreytingalítið og fær helmingur götuhliðanna falleinkunn. Athugunarsvæðið býður ekki upp á eins líflega, fjölbreytta og jákvæða upplifun og það gæti gert. Mælikvarðar þessarar rannsóknar geta hamlað gegn þessari neikvæðu þróun og því er mikilvægt að vanda til allra þessara þátta við hönnun. Til að stuðla að því gætu borgaryfirvöld og/eða samtök verslunar og þjónustu veitt verðlaun fyrir góðar götuhliðar. Eins gætu skipulagsyfirvöld gert þessa þætti að stöðlum fyrir hönnun á öllu nýju verslunarhúsnæði og breytingar á gömlu líka.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ólafur Gísli Reynisson 1961-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9329
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9329

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
related terms
citation

Ólafur Gísli Reynisson 1961-. Gæði götuhliða í miðborg Reykjavíkur. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9329