Back to search

Agricultural University of Iceland

Þættir almenningssvæða greindir í umgjörð og hrynjanda: sniðmengi þátta sem skapa gott almenningssvæði

Abstract

dc:description.abstract

Verkefnið fjallar um að greina hvaða þættir skapa fýsilegt almenningssvæði og hvaða þætti bera að forðast við skipulagsgerð og hægt sé að lagfæra í núverandi svæðum sem ekki þykja góð. Með því að framkvæma spurningalista bæði í Þýskalandi og Íslandi fundust svæði sem þóttu fýsileg og óæskileg almenningssvæði í hvoru landi. Hvert fýsilegt og óæskilegt svæði var greint eftir greiningaraðferð sem byggir á íslenskri rannsókn sem er aðlöguð að rannsókninni og viðbótum miðað við kenningar sem þessi rannsókn styðst við. Við það fást þeir þættir sem þykja æskilegir að séu til staðar í almenningsrýmum. Síðan eru þessir þættir flokkaðir í eftirfarandi flokka, tenging við náttúru, mannlega tengingu, mannlegar þarfir og tengingu við umhverfið. Skilgreind eru síðan hugtökin umgjörð og hrynjandi sem hver þáttur sem greinist er staðsettur undir öðru hvoru hugtakinu. Með því fæst síðan sniðmengi þátta hrynjanda og umgjarðar sem getur nýst sem viðmið fyrir skipulagáætlanagerð og vinnu við almenningsrými almennt. Þessir þættir eru yfirleitt til staðar í rýminu getur ástand svæðisins verið mismunandi eftir því á hvaða tíma dags og árs það er skoðað. Svæði hafa mismunandi eiginleika af því eiginleika þeirra eiga misvel við aðstæður. Þar af leiðandi eru þættir svæðanna greindir í besta og versta ástandi til að meta virkni ástandsins ekki bara í besta ástandi. Hafa skal í huga að sömu þættir, með svæði að sömu stærð, með sömu uppsetningu gefa ekki sömu niðurstöðu á mismunandi landfræðilegum staðsetningum sökum mismunandi umgjörða og hvernig hrynjandi nýtur sín í þeirri umgjörð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Bjarki Þórir Valberg 1977-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9326
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9326

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bjarki Þórir Valberg 1977-. Þættir almenningssvæða greindir í umgjörð og hrynjanda: sniðmengi þátta sem skapa gott almenningssvæði. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9326