Back to search

Agricultural University of Iceland

Bakkarnir í Breiðholti: breytingartillögur

Abstract

dc:description.abstract

Bakkahverfið er hluti af Breiðholti sem er úthverfi Reykjavíkurborgar. Tilurð þessa lokaverkefnis má rekja til þess að höfundur er fæddur og uppalinn í Bakkahverfinu og hefur mikinn áhuga á því að sjá hverfið sitt bætt. Höfundur telur að með því að styrkja grænt svæði sem staðsett er í miðju hverfisins er aukið við þau gæði sem felast í Bökkunum. Spurningin sem ritgerðinni er ætlað að svara er því eftirfarandi: Hvaða þætti þarf að bæta og styrkja svo Bakkahverfið í Breiðholti verði aðlaðandi og eftirsóknarvert? Til að leita svara við spurningunni voru framkvæmdar greiningar á athugunarsvæðinu. Til þess að fá mynd af svæðinu hvernig það er uppbyggt og skipulagt er byggðarmynstur, umferðarmynstur og svæðisnotkun tilgreind með kortauppdráttum. Græna miðsvæðið er greint nokkuð nákvæmlega og eru þær greiningar sem unnar voru fyrir það ætlaðar sem grunnur að þeim breytingartillögum sem lagðar eru fram með uppdrætti í viðauka verkefnisins. Saga hverfisins, tilurð og erlendar fyrirmyndir eru skoðaðar ásamt því sem viðtal við Reyni Vilhjálmsson, höfund skipulags á græna svæðinu, er nýtt til þess að varpa ljósi á þær hugmyndir sem liggja að baki Bakkahverfinu. Gagnrýni á hverfið er skoðuð enda telur höfundur að með því að skoða þá gagnrýni sem hverfið hefur hlotið er hægt að draga fram þá galla sem felast í svæðinu og þarf að bæta svo gæði hverfisins aukist. Breytingartillögum að hverfinu er ætlað að vera svar við spurningunni sem lagt var af stað með. Umræðu og ályktunarkafli ritgerðarinnar er ætlað að varpa ljósi á hvað felst í svarinu en höfundur telur að græna svæðið sé lykillinn að því að bæta og styrkja hverfið svo það verði aðlaðandi og eftirsóknarvert.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Magnús Halldórsson 1985-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9276
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9276

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Magnús Halldórsson 1985-. Bakkarnir í Breiðholti: breytingartillögur. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9276