Back to search

Agricultural University of Iceland

Áningarstaðir á Snæfellsnesi

Abstract

dc:description.abstract

Áningarstaðir gefa ferðamönnum tækifæri á að staldra við á ferðalögum, hvílast og njóta náttúrunnar sem fyrir er. Áningarstöðum er fundinn staður þar sem umhverfið hefur upp á eitthvað sérstakt að bjóða t.d. mikilfenglegt útsýni, fegurð, fornminjar, sögulega viðburði eða gott skjól. Verkefni þetta gengur út á að greina og meta áningastaði Vegagerðarinnar á Snæfellsnesi. Þættir sem helst var lagt mat á voru: Aðdráttarafl, aðstaða, tækifæri og notagildi. Auk þess er sett fram hönnunartillaga að nýjum áningarstað á Snæfellsnesi. Markmiðið með verkefninu er að skoða hvað það er sem gerir stað að áningarstað og hvort hægt sé að auka gildi þess staðar. Greint er frá verkefni norsku Vegagerðarinnar í tengslum við áningarstaði og kannað hvort hægt sé að yfirfæra þau yfir á íslenskar aðstæður. Til að svara þessum spurningum var farið í vetfangsferðir þar sem áningastaðirnir voru greindir, auk þess sem rýnt var í ritaðar heimildir og rætt við fólk sem hefur átt hlut að máli. Niðurstöður ransóknarvinnunnar eru notaðar við útfærslu á hönnunartillögunni. Í henni er lögð áhersla á gott aðgengi allra að svæðinu og að veita góða aðstöðu fyrir þá gesti sem dvelja á staðnum. Samstarfsverkefnið ,,Ferðaþjónusta fyrir alla” var haft til hliðsjónar við hönnun staðarins. Staðseningin var valin út frá notkunnargildi staðarins. Helsta markmið hönninnartillögunnar er að búa til aðstöðu fyrir ferðamenn sem sækja á svæðið, einnig hreyfihamlaða.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðrún Rakel Svandísardóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9267
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9267

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún Rakel Svandísardóttir 1982-. Áningarstaðir á Snæfellsnesi. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9267