Abstract
dc:description.abstractTilgangur þessarar ritgerðar var að kanna almenna hönnun og ástand á lóðum fimm framhaldskóla í Reykjavík. Skólarnir sem valdir voru eru: Borgarholtsskóli, Menntaskólinn við Ármúla, Menntaskólinn við Hamrahlíð, Menntaskólinn í Reykjavík og Menntaskólinn við Sund. Skólarnir voru að hluta til valdir af handahófi en MR vegna staðsetningar í miðbæ Reykjavíkur og BHS sem úthverfaskóli Uppbygging ritgerðarinnar er í megin dráttum þrískipt; fræðileg umfjöllun, greiningarvinna og hugmyndir að úrbótum. Töluverð vakning hefur verið undanfarið um vandaða lóðahönnun í leikskólum og grunnskólum en lítið virðist hafa verið gert til þess að huga að eldri börnum og unglingum. Markmiðið með ritgerðinni er að vekja fólk til umhugsunar um umhverfi nemenda í framhaldsskólum og um umhverfið í heild. Grunnniðurstaðan er að lítil áhersla er lögð á hlutverk skólalóðanna hvort sem litið er til Aðalnámsskrár framhaldsskólanna, laga eða reglugerða. Hönnun flestra þeirra skólalóða sem athugaðar voru eru að mörgu leiti í ósamræmi við stefnu Aðalskipulags Reykjavíkur sérstaklega þegar kemur að hlutverki bílsins innan lóðamarka.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Berglind Ragnarsdóttir 1972-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/9265
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/9265