Back to search

Agricultural University of Iceland

Áhrif Borgarfjarðarbrúar á lífríki og kornastærð í Borgarfjarðarfjörum

Abstract

dc:description.abstract

Áhrif þverunar Borgarfjarðar með Borgarfjarðarbrú fyrir 30 árum er viðfangsefni þessarar rannsóknar og er um að ræða endurtekningu á sambærilegri úttekt sem gerð var árið 1973. Markmið rannsóknarinnar er tvíþætt; annars vegar að kanna breytingar í í fjörulífi og hins vegar að mæla breytingar í kornastærðardreifingum. Tegundafjölbreytileiki er borinn saman,heildarlífþyngd, þéttleiki á einstökum svæðum og þéttleiki einstakra tegunda. Tekin voru 60 fjörusýni á 30 stöðvum og dýr greind til tegunda eða hópa. Fjöldi og þyngd reiknað á m2 í öllum tilfellum og borið saman við fyrri rannsókn. Kornastærðarsýni voru tekin á hverri stöð og kornastærðardreifing borin saman við fyrri rannsókn. Lífríki hefur breyst með tilkomu Borgarfjarðarbrúar. Tegundafjölbreytileikinn er minni, færri hafrænar tegundir eru á svæðinu, og þéttleiki einkennistegundarinnar er meiri á einstökum svæðum. Heildarlífþyngd hefur minnkað um helming og landrænar tegundir hafa komið inn í litlum mæli. Þrenging vegna brúarinnar hefur valdið því að ferskvatn helst lengur ofan við brú og hindrar sjávarföll upp fjörðinn sem gerir ferskvatnsáhrif í firðinum meiri. Brúin hægir á útrennsli Hvítár sem veldur uppsöfnun efna ofan við brú og framrennsli sands út fjörðinn er minna. Meðalkornastærð er mjög marktækt grófari á öllum svæðum fjörunnar og silt eða leirufjörur eru ekki lengur á svæðinu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hrafnhildur Tryggvadóttir 1973-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9256
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9256

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hrafnhildur Tryggvadóttir 1973-. Áhrif Borgarfjarðarbrúar á lífríki og kornastærð í Borgarfjarðarfjörum. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9256